Samkeppni Logo

Pennanum gert að taka bækur Uglu í sölu og tryggja málefnaleg viðskipti við bókaútgefendur – Ákvörðun til bráðabirgða

16. júlí 2020
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið hefur í dag
tekið ákvörðun til bráðabirgða í tilefni af þeirri ráðstöfun Pennans ehf.
(Penninn) að taka úr sölu bækur Uglu útgáfu ehf. (Ugla) í verslunum sínum.
Telur eftirlitið sennilegt að með því að senda til baka m.a. söluhæstu bækur
Uglu í maí sl. og í framhaldi synja um viðskipti við útgáfuna hafi Penninn
misnotað markaðsráðandi stöðu sína á smásölumarkaði fyrir bækur.

Í bráðabirgðaákvörðuninni er þeim
fyrirmælum beint til Pennans að taka bækur Uglu aftur til sölu í verslunum sínum
og hafa þær aðgengilegar í sölukerfum og á vefsíðu. Þá er mælt fyrir um að
hvers konar ákvarðanir Pennans um að synja bókaútgefendum um viðskipti
skuli byggja á málefnalegum forsendum
sem skráðar séu í verklagsreglum og aðgengilegar viðkomandi bókaútgefendum og
Samkeppniseftirlitinu.

Penninn hefur lengi verið
langstærsti aðili í bóksölu hér á landi. Á það sérstaklega við á þeim árstíma
sem er utan við hina árstíðabundnu jólabókasölu í nóvember og desember þegar
bækur eru einnig boðnar í stórmörkuðum. Hefur það grundvallarþýðingu fyrir
bókaútgefendur að bækur þeirra séu seldar í verslunum Pennans allt árið um
kring.

Samkeppniseftirlitið telur að
umrædd sölusynjun hafi ekki stuðst við málefnalegar forsendur, en m.a. var að
ræða nýjar og nýlegar bækur Uglu sem seldust vel í verslunum Pennans. Telur
Samkeppniseftirlitið nægilega í ljós leitt að útgáfa Uglu á bókum í
hljóðbókarformi hafi verið veigamikil ástæða þeirrar ákvörðunar Pennans að
hætta að selja bækur Uglu.

Að mati Samkeppniseftirlitsins
getur þessi háttsemi Pennans m.a. fælt íslensk bókaforlög frá því að leita
nýjunga við sölu á bókum sínum. Sölusynjun af þessu tagi getur því haft
alvarlegar afleiðingar fyrir bókaútgefendur, rithöfunda og neytendur, jafnvel
þótt bækur Uglu séu teknar aftur til sölu að hluta eða öllu leyti. Mikilvægt er
því að bregðast við umræddri synjun strax, enda er undirbúningur að útgáfu bóka
fyrir næstu jól framundan.

Bráðabirgðaákvörðunin gildir til
31. desember 2020. Hún er aðgengileg hér .

Um bráðabirgðaákvarðanir:

Samkvæmt 3. mgr. 16. gr.
samkeppnislaga nr. 44/2005 er Samkeppniseftirlitinu heimilt að taka ákvarðanir
til bráðabirgða um einstök mál ef sennilegt þykir að sú háttsemi eða þær
aðstæður sem til athugunar eru fari gegn ákvæðum samkeppnislaga eða ákvörðunum
teknum á grundvelli þeirra. Skilyrði er að málið þoli ekki bið. Í slíkum
ákvörðunum er því ekki lagt endanlegt mat á hvort um ólögmætar aðgerðir sé að
ræða.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.