Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppni stuðlar að bættum kjörum launafólks

30. janúar 2024

Í nýrri skýrslu Samkeppniseftirlitsins
og annarra samkeppniseftirlita á Norðurlöndum er fjallað um hvernig
samkeppnishamlandi samstarf á meðal fyrirtækja getur haft skaðleg áhrif á kjör
launafólks sem og neytendur. Þá er að finna í skýrslunni umfjöllun um hvernig samráð
á milli fyrirtækja sem snertir starfsfólk þess getur farið gegn
samkeppnislögum. Er þar sérstök áhersla lögð á samráð fyrirtækja um laun
starfsfólks sem og samráð fyrirtækja um að ráða ekki starfsfólk hvers annars. Á
það ber hér þó að minnast að samkeppnislögin taka ekki til launa eða annarra
starfskjara launþega samkvæmt kjarasamningum. Þegar slíkum samningum sleppir eiga
samkeppnislögin eðli máls samkvæmt við.

Valur Þráinsson,
aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins:

„Á tímum umtalsverðra
verðlagshækkana er mikilvægt að launafólk geti gengið að því að fyrirtæki eigi
ekki í ólögmætu samráði um kjör þess með neikvæðum afleiðingum á til að mynda
laun eða möguleika þeirra til þess að bæta kjör sín með því að skipta um starf.
Hefur samráð sem þetta einnig þau áhrif að vinnuafl leitar ekki þangað þar sem
þörfin eftir því er sem mest sem getur haft neikvæð áhrif á markaði og nýsköpun
á þeim.
“

Framkvæmd í Evrópu sem og í Bandaríkjunum
bendir til aukinnar áherslu samkeppniseftirlita á að uppræta samráð fyrirtækja
er snertir starfskjör starfsfólks sem og samráð um að ráða ekki starfsfólk
keppinauta. Tilgangur slíks samráðs er m.a. vinna gegn hækkun á launum. Hafa
samkeppnislagabrot sem þessi verið upprætt og viðkomandi fyrirtæki sektuð. Í
skýrslunni er fjallað um áhrif þessa í Norrænu samhengi en vinnumarkaðirnir á
Norðurlöndunum eru talsvert frábrugðnir í alþjóðlegum samanburði, en þar hefur
mikil þátttaka í stéttarfélögum og atvinnugreinasamtökum áhrif.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins:

„Skýrslan varpar ljósi á eina
ástæðu þess að virk samkeppni og samkeppnisreglur eru mikilvægar fyrir hagsmuni
launafólks og almennings. Alþekkt er að virk samkeppni stuðlar að lægra verði
og betri þjónustu. Til viðbótar eru samkeppnisreglur til þess fallnar að vinna
gegn því að kjör launafólks og möguleikar þess á vinnumarkaði séu ekki skertir.
Jafnframt er mikilvægt að hugað sé að
því í hverju tilviki hvort samrunar fyrirtækja séu til þess fallnir að skaða
hagsmuni launafólks með óeðlilegum hætti. Þá er virkt eftirlit með verðsamráði
og öðrum samkeppnishömlum nauðsynlegt til að stuðla að því að umsamdar
kjarabætur í kjarasamningum bæti í raun hag launfólks.“

Bakgrunnsupplýsingar:

Samkvæmt 2. mgr. 2. gr.
samkeppnislaga nr. 44/2005 taka lögin ekki til launa eða annarra starfskjara
launþega samkvæmt kjarasamningum. Hið sama felst í samkeppnisreglum
EES-samningsins sem gilda hér á landi. Er fyrirtækjum aðeins heimilt að hafa
með sér samstarf um atriði sem falla undir meginmarkmið kjarasamninga er varðar
kjör og starfskilyrði launþega, sbr. dóm EFTA-dómstólsins frá 19. apríl 2016. Þegar slíkum opinberum kjarasamningum sleppir
eiga samkeppnisreglu eðli máls samkvæmt við um t.d. samskipti og samninga milli
fyrirtækja sem varðað geta starfskjör. Í því felst t.d. að samningar eða
samskipti fyrirtækja sem eru til þess fallin að rýra kjör sem samið hefur verið
um í kjarasamningum, geta falið í sér brot á samkeppnislögum.

Í framkvæmd hér á landi hefur
reynt á samkeppnishömlur sem tengjast með beinum hætti kjörum starfsmanna. Í
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 33/2023 , Brot Samskipa gegni banni við
ólögmætu samráði
, er lýst ólögmætu samráði sem fól í sér samskipti
fyrirtækja um hvort greiða skyldi starfsmönnum þeirra hærri laun en mælt var
fyrir um í kjarasamningum. Í máli sem endaði með dómum Hæstaréttar á árinu 2016
höfðu olíufélögin t.d. ólögmætt samráð um það hversu háa fjárhæð skyldi gefa
starfsmönnum fyrirtækjanna í jólagjöf.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.