Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið í 20 ár – Virkt samkeppniseftirlit skilar umtalsverðum þjóðhagslegum ábata

1. júlí 2025

Fyrir réttum 20 árum síðan, eða þann 1. júlí 2005, hóf Samkeppniseftirlitið starfsemi sína í núverandi mynd. Fram að því, eða frá gildistöku samkeppnislaga 1993, hafði Samkeppnisstofnun og samkeppnisráð farið með framkvæmd samkeppnislaga, auk eftirlits með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.

Breytingarnar 2005 juku áherslu á samkeppniseftirlit

Breytingarnar 2005 miðuðu að því að styrkja samkeppniseftirlit, einkum með því að skilja að eftirlit með samkeppni og eftirlit með neytendamálum og skýra þannig fókus í samkeppniseftirliti. Einnig var stjórnsýsla samkeppniseftirlits einfölduð.

Frá því að Samkeppniseftirlitið var sett á stofn hefur eftirlitið gripið til margs konar aðgerða til að efla samkeppni á mörkuðum. Hefur eftirlitið rekið á fimmta þúsund stjórnsýslumál, þar af hafa ákvarðanir verið birtar á heimasíðu í um 850 málum, en flestum öðrum málum lokið með bréfum. Samanlagðar stjórnvaldssektir greiddar í ríkissjóð vegna brota á samkeppnislögum og ákvörðunum eftirlitsins námu við síðustu áramót tæplega 19 milljörðum króna, á verðlagi ársins 2024. Á annan tug samkeppnishamlandi samruna hafa verið ógiltir og um 100 samrunum sett skilyrði til þess koma í veg fyrir samkeppnishamlandi áhrif samruna.

Iðulega reynir á úrlausnir eftirlitsins fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála og dómstólum. Á starfstíma eftirlitsins hafa gengið um 150 úrskurðir áfrýjunarnefndar, tæplega 50 dómar í héraðsdómi, um tugur dóma í Landsrétti og tæplega 40 dómar í Hæstarétti.

Einnig hefur Samkeppniseftirlitið beint á þriðja hundrað umsögnum til stjórnvalda um lagafrumvörp og stjórnvaldsfyrirmæli og sett fram nálægt 100 formleg tilmæli til stjórnvalda um ýmsar aðgerðir til þess að efla samkeppni. Er þá ótalin ýmis óformleg samskipti við stjórnvöld um sama efni. Þá hefur Samkeppniseftirlitið gefið út um 70 skýrslur af ýmsu tagi.

Ábati 18 til 29-föld fjárframlög

Samkeppniseftirlitið birtir árlega uppfært mat á reiknuðum ábata vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins síðastliðinn áratug. Reiknaður ábati vegna íhlutunar á árunum 2015 – 2024 nam 0,29-0,48% af vergri landsframleiðslu yfir tímabilið, eða sem nemur 18-29-földum fjárframlögum til stofnunarinnar á tímabilinu. Reiknaður ábati var að meðaltali 11,6-19,1 ma.kr. á ári hverju, á verðlagi ársins 2024.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri:

„Það eru í senn krefjandi og spennandi tímar framundan í atvinnulífi hér á landi sem erlendis. Reynslan sýnir okkur að þeim þjóðum vegnar best sem skapa atvinnulífi sínu sterkan grundvöll þar sem virk samkeppni er sett á oddinn. Við þær aðstæður keppast fyrirtæki við að bjóða sem bestar vörur og þjónustu á sem hagstæðustu verði, á grundvelli nýsköpunar og áræðni. Áherslur Samkeppniseftirlitsins fram á veginn taka eðli máls samkvæmt mið af þessu“.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.