Samkeppni Logo

Samkeppniseftirlitið ógildir kaup Kaupfélags Skagfirðinga á Gunnars

31. október 2025

Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun sinni í dag ógilt kaup Kaupfélags
Skagfirðinga (KS) á Gunnars ehf. Ákvörðunina má nálgast hér.

Með kaupum KS á Gunnars hefðu runnið saman tveir af stærstu
framleiðendum á majónesi og köldum sósum á Íslandi. Gunnars er eins og kunnugt
er sterkt vörumerki í þessum vöruflokki og KS framleiðir og dreifir sömu
vörutegundum undir merkjum E. Finnsson og eftir atvikum Vogabæjar, auk þess sem
báðir aðilar framleiða þessar vörur einnig fyrir önnur fyrirtæki. Báðir aðilar
selja sömu vörutegundir til dagvöruverslana og stórnotenda.

Að mati Samkeppniseftirlitsins hefði samruninn haft alvarlegar
afleiðingar fyrir samkeppni, viðskiptavinum og neytendum til tjóns. Nánar
tiltekið snúa skaðleg áhrif samrunans aðallega að eftirfarandi atriðum:

  • Markaðsráðandi staða hefði orðið til á nánar tilgreindum mörkuðum fyrir hreint majónes
    og aðrar tilbúnar kaldar sósur sem skilgreindir eru nánar í ákvörðuninni. Eru fyrirtækin
    með mjög sterka stöðu á vörumörkuðum málsins. Þannig hefði sameinað fyrirtæki orðið
    stærsta fyrirtækið á viðkomandi mörkuðum og með umtalsverða yfirburði yfir
    helsta keppinaut sinn Kjarnavörur. Þá eru fáir framleiðendur að majónesi
    hérlendis og hefði þeim fækkað um einn vegna samrunans.
  • Fyrirtækin eru nánir og mikilvægir keppinautar við
    framleiðslu og sölu á hreinu majónesi og tilbúnum köldum sósum. Með kaupum KS á
    Gunnars hefði því náinn og mikilvægur keppinautur horfið af sviðinu og þar með
    það samkeppnislega aðhald sem því fylgir. Aðgangshindranir eru auk þess til
    staðar sem hindra samkeppni og gera innkomu burðugs keppinautar eða stækkun
    keppinauta ólíklegri en ella. Þá vegur kaupendastyrkur fárra aðila á
    dagvörumarkaði ekki upp á móti skaðlegum áhrifum samrunans með fullnægjandi
    hætti.
  • Skaðleg
    útilokunaráhrif og lóðrétt samþætting hefði aukist.
    Fyrir samrunann er Kaupfélag Skagfirðinga lóðrétt samþætt
    fyrirtæki með fjölþætta og víðfeðma starfsemi. Með samrunanum hefðu umsvif
    samstæðu Kaupfélagsins og lóðrétt samþætting þess aukist sömuleiðis. Í krafti
    aukinnar samþættingar og stöðu hins sameinaða fyrirtækis á aðliggjandi
    vörumörkuðum málsins hefði samruninn haft skaðleg útilokunaráhrif fyrir
    samkeppni á fráliggjandi mörkuðum, líkt og nánar greinir í ákvörðuninni.

Bakgrunnsupplýsingar

Fullbúin
samrunatilkynning barst þann 19. júlí 2022 og hófst þá formleg rannsókn á
samrunanum. Þar sem fyrir lá að samruninn myndi leiða til mikillar samþjöppunar
var óhjákvæmilegt að taka hann til ítarlegrar rannsóknar. Var samrunaaðilum
sérstaklega tilkynnt um það.

Eftir
víðtæka gagnaöflun var haldinn stöðufundur með samrunaaðilum í byrjun október,
þar sem þeim var gerð rökstudd grein fyrir því frummati eftirlitsins að
samruninn myndi skaða samkeppni með alvarlegum hætti. Hafa samrunaaðilar í
framhaldinu látið reyna á frummatið með því að koma frekari sjónarmiðum og
gögnum á framfæri. Af þeim sökum var rannsókn á samrunanum haldið áfram, gefið
út svokallað andmælaskjal þar sem frummat eftirlitsins er ítarlega rökstutt og
samrunaaðilum gefinn kostur á að bregðast við því.

Majónes og
skyldar vörur hafa verið framleiddar undir vörumerkinu Gunnars allt frá árinu
1960. Fyrirtækið hefur starfað í núverandi mynd frá árinu 2014.

KS hefur
fjölþætta og umfangsmikla starfsemi en meginstarfsemi félagsins er matvælaframleiðsla.
Samanstendur samstæða og rekstur KS af kjötafurðastöð, dagvöruverslunum,
byggingar-vöruverslun, bifreiðaverkstæði, vélaverkstæði, og mjólkursamlagi og
mjólkurframleiðslu KS. Einnig er starfsemin auk þess í dótturfélögum félagsins
sem eru Bústólpi ehf., Esja Gæðafæði ehf., FISK Seafood ehf., Fóðurblandan hf.,
Fóðurfélagið ehf., Heilsuprótein ehf., Íslenskar sjávarafurðir ehf., Nýprent
ehf., Sláturhús Hellu hf., Sláturhús KVH ehf., Tengill ehf., Trésmiðjan Borg
ehf., Vogabær ehf., og Vörumiðlun ehf. Þá er Kaupfélagið hluthafi í
Mjólkursamsölunni ehf.

Undir meðferð málsins hafa
samrunaaðilar hvorki óskað eftir sáttaviðræðum né lagt fram tillögur að
mögulegum skilyrðum með formlegum hætti. Þá hafa samrunaaðilar sérstaklega
tekið fram að ekki sé byggt á því að fallast beri á samrunann vegna sjónarmiða
um fyrirtæki á fallandi fæti. 

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.