Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samruni Styrkáss, Kletts og Krafts afturkallaður

17. janúar 2025

Föstudaginn 10. janúar sl. afturkölluðu Styrkás hf. og Kraftur ehf. samrunatilkynningu til Samkeppniseftirlitsins um sameiningu félaganna, en fyrir á Styrkás m.a. félagið Klett sölu og þjónustu ehf. Við afturköllun tilkynningarinnar fellur rannsókn Samkeppniseftirlitsins á samrunanum sjálfkrafa niður. 

Samkeppniseftirlitsins hefur nú birt stutta ákvörðun um lyktir málsins, þar sem m.a. er gerð grein fyrir meginefni rannsóknarinnar og meðferð málsins. Úrlausnin er aðgengileg hér.

Af fréttatilkynningu samrunaaðila til fjölmiðla um afturköllun samrunans má ráða að meginástæða hennar hafi verið sú að Samkeppniseftirlitið hafi ekki fallist á þær markaðsskilgreiningar samrunaaðila sem hafi að þeirra sögn átt stoð í framkvæmd hjá framkvæmdastjórn ESB og samkeppnisyfirvöldum á Norðurlöndum.

Rétt er í þessu sambandi að halda því til haga að framangreindar skýringar samrunaaðila eru ekki í fullu samræmi við þær skýringar sem eftirlitinu voru gefnar. Óskuðu samrunaaðilar trúnaðar um þær. Þá er óhjákvæmilegt að taka fram að Samkeppniseftirlitið hafði ekki við rannsókn málsins tekið afstöðu til markaðsskilgreininga í málinu, en rannsókn málsins tók mið af sjónarmiðum aðila í samrunaskrá og fyrirliggjandi fordæmum úr Evrópurétti.

Á hinn bóginn hafði rannsóknin leitt í ljós að samrunaaðilar eru samanlagt stærstu innflytjendur vörubifreiða hérlendis. Fyrirtækið Klettur sala og þjónusta, í eigu Styrkáss, er aðalsöluaðili Scania vörubifreiða hérlendis og rekur tengt verkstæði auk annarrar starfsemi, og Kraftur selur m.a. MAN vörubifreiðar og önnur atvinnutæki og rekur tengt verkstæði.

Er um að ræða mikilvæga atvinnustarfsemi og samkvæmt frummati Samkeppniseftirlitsins virðist heildarstærð hennar nema um 14 milljörðum kr. á ári. Er þá ekki meðtalin viðgerðar- eða viðhaldsþjónusta, sala varahluta eða ásetts búnaðar fyrir vörubifreiðar, önnur þjónusta eða vörusala sem Styrkás / Klettur og Kraftur veita, eða tengd starfsemi í samstæðu Styrkáss og Skeljar fjárfestingafélags. Lýstu umsagnaraðilar yfir áhyggjum af stærð samsteypu Styrkáss og að markaðsráðandi staða gæti myndast með samrunanum.

Við rannsóknina aflaði Samkeppniseftirlitið ítarlegra gagna og umsagna frá markaðsaðilum, auk upplýsinga frá samrunaaðilum sjálfum. Vill eftirlitið þakka fyrirtækjum á viðkomandi mörkuðum fyrir þá vinnu og gögn sem þau lögðu til í þágu rannsóknarinnar.

Að öðru leyti vísast til ákvörðunar nr. 2/2025 .

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.