Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Tilkynning Samkeppniseftirlitsins vegna stöðvunar á rekstri flugfélagsins WOW air

28. mars 2019
snowcap mountain

Tilmæli – Mikilvægi þess að hugað sé
að samkeppni við næstu skref

Samkvæmt tilkynningu á
vef Samgöngustofu og vef flugfélagsins WOW air morguninn 28. mars 2019 hefur
flugfélagið hætt starfsemi. Í því ljósi vill Samkeppniseftirlitið koma
eftirfarandi upplýsingum á framfæri til viðkomandi stjórnvalda, hagsmunaaðila
og almennings. Jafnframt beinir Samkeppniseftirlitið tilteknum tilmælum til
viðkomandi stjórnvalda og þeirra aðila sem munu halda á viðkomandi eignum WOW í
framhaldinu, sbr. nánar niðurlag tilkynningarinnar.

Samkeppni WOW í
áætlunarflugi til og frá Íslandi hefur verið mikilvæg

Samkeppni í viðskiptum er mikilvæg þar sem hún
eykur velferð neytenda og stuðlar að hagkvæmni í atvinnulífinu. Á þetta við um áætlunarflug
til og frá Íslandi en eðli málsins samkvæmt eru flugsamgöngur við önnur ríki
afar mikilvægar fyrir íslenskt samfélag. Hefur reynslan sýnt að aukin samkeppni
í flugi til og frá landinu lækkar verð og eykur tíðni ferða og bætir þar með
þjónustu við neytendur. Þá er samkeppni á þessu sviði ein grundvallarforsendan
fyrir vexti og viðgangi ferðaþjónustu á Íslandi.

WOW hefur verið
mikilvægur keppinautur í áætlunarflugi til og frá Íslandi frá því félagið hóf
starfsemi um mitt ár 2012 og yfirtók í framhaldinu Iceland Express. Þegar
Iceland Express kom inn á markaðinn árið 2003 með flugi til Kaupmannahafnar og London lækkaði verð um allt að 30-40%. Við innkomu
Iceland Express á markaðina fyrir flug til Boston og New York árið 2010 lækkaði
verð um allt að helming. Verðkannanir óháðra aðila á liðnum árum sýna að þessi verðsamkeppni
hélst með innkomu WOW bæði í flugi til og frá Evrópu og Norður-Ameríku. Þessi
aukna samkeppni hefur því leitt til mikils sparnaðar fyrir íslenskan almenning
og fyrirtæki. Auk þess hefur lægra verð og aukin tíðni flugferða leitt til
verulegrar fjölgunar ferðamanna en ferðaþjónusta er þegar orðin ein stærsta
atvinnugrein landsins.

Brotthvarf WOW mun að
óbreyttu auka samþjöppun

Hlutdeild WOW air í
áætlunarflugi til og frá Íslandi var 25-30% árið 2018 og hlutdeild Icelandair
um 35-40% miðað við fjölda farþega. Með tengifarþegum var hlutdeild WOW 35-40%
og hlutdeild Icelandair 40-45% sama ár. Hlutdeild annarra keppinauta, þ.e.
erlendra flugfélaga, var mun minni og dreifðari. Með vísan til þessa þarf ekki
að fjölyrða um að brotthvarf WOW af íslenska markaðnum skilur eftir sig umtalsvert
skarð. Samþjöppun í flugi mun því aukast verulega, a.m.k. til skammst tíma.

Mikilvægi
afgreiðslutíma WOW á flugvöllum

Þeir afgreiðslutímar (e. slot)
á flugvöllum sem WOW hefur búið yfir geta verið mjög mikilvægir í samkeppni til
og frá Íslandi. Í því sambandi er mikilvægt að gera greinarmun á flugfélögum
sem fljúga „frá Íslandi“ og flugfélögum sem fljúga „til Íslands“. Flugfélög sem
fljúga „frá Íslandi“ miða áætlun sína við að Keflavíkurflugvöllur sé þeirra
heimahöfn og flug hefjist þar alla jafna að morgni dags og/eða að flugvöllurinn
sé þeirra tengistöð. WOW og Icelandair hafa verið í þessum flokki flugfélaga og
er eftirspurn þeirra eftir afgreiðslutímum því mikil á morgnana og síðdegis og
þá er Keflavíkurflugvöllur þéttsetinn. Flugfélög sem fljúga „til Íslands“ eru
hins vegar öll erlend flugfélög sem fljúga á milli áfangastaða erlendis og
Íslands. Heimahöfn eða tengistöðvar þessara flugfélaga eru eðli máls samkvæmt
erlendir flugvellir. Ákvarðanir félaganna um einstaka áfangastaði, þ.á m.
Ísland, geta breyst með skömmum fyrirvara, enda eru viðskiptahagsmunir þeirra
ekki tengdir Íslandi með sama hætti og þeirra flugfélaga sem reka starfsemi
sína héðan.

Flugfélög sem fljúga „frá
Íslandi“ eru mikilvæg fyrir íslenska neytendur enda er þjónusta þeirra ekki síst
sniðin að þeirra þörfum. Af þessu leiðir að afgreiðslutímar sem WOW býr yfir
bæði á Keflavíkurflugvelli sem og á öðrum erlendum flugvöllum sem félagið hefur
flogið til eru mikilvægir og verðmætir fyrir þá aðila sem vilja koma inn á
íslenska markaðinn og hefja flug „frá Íslandi“ þar sem Keflavíkurflugvöllur er
heimahöfn. Þessir afgreiðslutímar eru einnig mikilvægir við uppbyggingu
leiðakerfis í áætlunarflugi til og frá Íslandi sem þjónar farþegum á leið yfir
Atlantshafið. Afgreiðslutímar WOW geta því verið forsenda þess að nýr aðili
geti hafið samkeppnishæft áætlunarflug til og frá Keflavíkurflugvelli.

Eignir flugfélaga

Þrátt fyrir að
flugfélagið WOW air hafi nú hætt starfsemi kunna að vera til staðar ýmis
verðmæti í félaginu sem nýst geta á íslenskum flugmarkaði í kjölfarið. Er um að
ræða m.a. vörumerki, samninga við starfsfólk, samninga um leigu flugvéla og
ýmis konar leyfi sem eftir atvikum er unnt að viðhalda í tiltekinn tíma. Í
þessu samhengi skipta afgreiðslutímar á flugvöllum töluverðu máli, en um er að
ræða takmörkuð gæði sem flugrekstraraðilar halda á, sbr. framangreint. Þannig
er í reglum EES-réttar um afgreiðslutíma, sem gilda m.a. á Íslandi, gert ráð
fyrir því að unnt sé, að vissum skilyrðum uppfylltum, að veita félagi sem
hættir rekstri og jafnvel fer í þrotameðferð heimild til þess að halda eftir
tilteknum réttindum á meðan leitað er leiða til þess að selja eignir til nýrra
aðila og bjarga með því verðmætum. Líta má til erlendra
fordæma í þessu sambandi.

Fram
hefur komið að WOW air skilaði í dag inn flugrekstrarleyfi sínu til
Samgöngustofu. Úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum er tengd flugrekstrarleyfi
viðkomandi flugfélags. Afar mikilvægt er að stjórnvöld hugi að því að
flugrekstrarleyfið eða réttindi því tengd haldi gildi sínu að einhverju leyti og
grípi e.a. til annarra ráðstafana til þess að stuðla að því að þrotabú
félagsins geti nýtt sér þær eignir sem felast í afgreiðslutímum á flugvöllum og
þar með að eignirnar nýtist hugsanlega til þess að viðhalda samkeppni á
flugmarkaði.

Viðskipti
með eignir geta falið í sér samruna

Í
framkvæmd samkeppnislaga bæði hér á landi og í EES/ESB-samkeppnisrétti hefur
verið litið svo á að kaup á eignum af þrotabúum geti falið í sér samruna í
skilningi samkeppnisréttarins. Fordæmi erlendis sýna að reynt er að tryggja að viðskipti
þrotabúa með eignir fallinna flugfélaga raski ekki samkeppni.

Mikilvægt er að m.a.
skiptastjórar hafi hliðsjón af því að samkeppnislög geta tekið til ráðstafana
þeirra og þeir reyni eftir því sem unnt er að hafa hliðsjón af
samkeppnissjónarmiðum.

Tilmæli Samkeppniseftirlitsins

Í ljósi alls
framangreinds beinir Samkeppniseftirlitið því til viðkomandi stjórnvalda og
þeirra aðila sem munu halda á viðkomandi eignum WOW air í framhaldinu að hugað
sé að samkeppnislegum áhrifum þeirra ákvarðana sem teknar verða um úrlausn
málsins. Þar á meðal er mælst til eftirfarandi:

· Að þeir sem koma að úrlausn málsins geri það sem í
þeirra valdi stendur til þess að tryggja að eignir hverfi ekki af markaðnum, en
þess í stað sé gripið til mögulegra ráðstafana sem stuðla að því að samkeppni á
íslenskum flugmarkaði sé viðhaldið, eftir því sem framast er unnt.

· Að flugmálayfirvöld, þ.m.t. samræmingarstjórar á
flugvöllum, liðki fyrir því eftir því sem framast er kostur að eignir
flugfélaga, óefnislegar sem og efnislegar, sem hætta starfsemi geti nýst nýjum
aðilum í rekstri. Er þetta ekki síst mikilvægt á Íslandi sem eðli máls samkvæmt
er landfræðilega afmarkaður markaður og hagkerfið byggir að töluverðu leyti á
ferðamannaiðnaði.

· Að skiptastjórar geri allt sem í þeirra valdi
stendur til þess að tryggja það að eignir hverfi ekki af markaðnum og þar með
að samkeppni á íslenskum flugmarkaði sé viðhaldið eftir því sem framast er
unnt. 

English version here

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
SKE eldsneytismarkaður

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Eldsneytismarkaður-4

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.