Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Brýnt er að stjórnvöld og fjármálafyrirtæki hugi nú þegar að samkeppnismálum við framtíðarstefnumótun á fjármálamarkaði

13. júlí 2011
snowcap mountain

BankarSamkeppniseftirlitið gaf út umræðuskjal um samkeppni á bankamarkaði í apríl sl. Markmiðið var að hvetja fjármálafyrirtæki og stjórnvöld til að gefa samkeppnismálum gaum við stefnumótun um fjármálamarkaðinn og kynna sjónarmið sín um samruna banka.

Meðal helstu niðurstaðna umræðuskjalsins var að samþjöppun á bankamarkaði hefði aukist verulega frá hruni, aðgangshindranir væru miklar og erfitt væri fyrir neytendur að skipta um banka. Þá taldi Samkeppniseftirlitið að bankakerfið væri of dýrt miðað við núverandi umfang og hagræðing því nauðsynleg. Samkeppniseftirlitið taldi hins vegar að mjög alvarleg samkeppnisvandamál gætu fylgt samrunum viðskiptabanka, a.m.k. í þeim tilvikum þar sem einn eða fleiri stóru bankanna væri aðili að slíkum samruna. Í því efni benti Samkeppniseftirlitið á að stærðarhagkvæmni væri sýnd veiði en ekki gefin.

Samkeppniseftirlitið óskaði eftir sjónarmiðum fjármálafyrirtækja og hagsmunaðila fyrir 31. maí 2011. Stofnuninni bárust sjónarmið frá átta aðilum; bönkum, samtökum og einstaklingum. Athygli vekur að engar umsagnir bárust frá stofnunum í stjórnsýslunni sem koma að málefnum fjármálamarkaðar.

Ítarlegustu athugasemdirnar bárust frá Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum. Bankarnir eru í meginatriðum ósammála greiningu Samkeppniseftirlitsins þó áherslur bankanna í svörum sínum séu mismunandi. Bent er á að umræðuskjalið einblíni um of á hugsanleg neikvæð áhrif samruna og breytingar á markaðnum. Ekki sé rétt ályktað hjá Samkeppniseftirlitinu að rannsóknir bendi til neikvæðra áhrifa samruna á hagræðingu. Samruni fjármálafyrirtækja sé besta leiðin til að ná fram nauðsynlegri hagræðingu í rekstri en ljóst sé að núverandi kerfi beri ekki marga banka. Þá er bent á að áherslan ætti að vera að styrkja ferli virkrar samkeppni í þágu neytenda í stað þess að horfa eingöngu til þess að vernda tilvist keppinauta sem eru til staðar á markaðnum.

Samkeppniseftirlitið hefur haldið fund með umsagnaraðilum þar sem eftirlitið rakti sjónarmið sín og umsagnaraðila. Samkeppniseftirlitið endurtekur brýningu sína til stjórnvalda og fjármálafyrirtækja að huga nú þegar að samkeppnismálum við framtíðarstefnumótun á fjármálamarkaði. Það er m.a. brýnt vegna þess að um þessar mundir liggur fyrir að taka þurfi ákvörðun um framtíð sparisjóðakerfisins, sala á Byr hf. stendur fyrir dyrum og óvissa ríkir um framtíð Teris sem séð hefur mörgum sparisjóðum og minni fjármálafyrirtækjum fyrir upplýsingatækniþjónustu.

 

Uppfært 13. september 2011

Í framhaldi af úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála nr. 4/2011, Seðlabanki Íslands gegn Samkeppniseftirlitinu, fékk Samkeppniseftirlitið umbeðin gögn afhent, sjá frétt.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.