Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Búvörulög – Dómur Hæstaréttar Íslands – Brýnt að Alþingi geri breytingar á búvörulögum

21. maí 2025
snowcap mountain

Með dómi Hæstaréttar Íslands , sem kveðinn var upp í dag, 21. maí, er snúið dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, uppkveðnum 19. nóvember 2024, þess efnis að undanþáguheimildir frá búvörulögum, sem Alþingi hafði samþykkt með lögum nr. 30/2024, hefðu ekki lagagildi.

Forsagan

Forsaga málsins er að Innness hafði krafist þess að Samkeppniseftirlitið gripi til aðgerða vegna samstarfs og samruna kjötafurðastöðva sem sæktu heimild í undanþágur frá samkeppnislögum sem Alþingi samþykkti með lögum nr. 30/2024. Taldi Innness m.a. að undanþágurnar hefðu ekki öðlast gildi þar sem breytingar Alþingis á búvörulögum hefðu ekki staðist Stjórnarskrá Íslands. Samkeppniseftirlitið hafnaði kröfu Innness á þeim grundvelli að það væri ekki á valdssviði þess að leggja mat á stjórnskipunarlegt gildi laga.

Innness höfðaði þá mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til að hnekkja fyrrgreindri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Í dómi sínum þann 18. nóvember 2024 komst héraðsdómur að þeirri niðurstöðu að umræddar undanþágur búvörulaga hefðu ekki samræmst stjórnarskránni og hefðu því ekki lagagildi.

Að gengnum dómi héraðsdóms skrifaði Samkeppniseftirlitið kjötafurðastöðvum og samtökum þeirra bréf, þar sem vakin var athygli á dóminum, óskað upplýsinga og lagt fyrir þær að stöðva hvers konar aðgerðir sem byggt höfðu á undanþáguheimildum sem héraðsdómur taldi að ekki hefðu öðlast lagagildi.

Að undangenginni athugun á forsendum dóms héraðsdóms taldi Samkeppniseftirlitið óhjákvæmilegt að fá fullnaðarúrlausn um þau álitaefni sem til fjallað er um í dómi héraðsdóms. Fékk Samkeppniseftirlitið leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur til réttarins. Dómur er nú fallinn.

Nánar um niðurstöðu Hæstaréttar

Niðurstaða Hæstaréttar byggir í meginatriðum á því að Alþingi hafi víðtækt svigrúm til mats á því hvenær breytingartillaga við lagafrumvarp feli í sér slíka gerbreytingu að fara beri með hana sem nýtt frumvarp. Meðferð meirihluta Alþingis á frumvarpinu sem breytti búvörulögunum hefði ekki farið út fyrir það svigrúm. Í dómnum er hins vegar engin afstaða tekin til þess hvort þessar breytingar séu hagfelldar fyrir íslenskan landbúnað. Segir Hæstiréttur að það sé ekki hlutverk hans að endurskoða hið pólitíska mat sem bjó að baki þessari breytingu á búvörulögum.

Af framangreindri niðurstöðu leiðir að lög nr. 30/2024 hafa lagagildi, að óbreyttu. Jafnframt stendur sú niðurstaða Samkeppniseftirlitsins, að því sé ekki heimilt að lögum að grípa til aðgerða vegna samstarfs og samruna kjötafurðastöðva sem reistar eru á gildandi undanþáguheimildum laganna.

Brýnt er að frumvarp atvinnuvegaráðherra um breytingar á búvörulögum nái fram að ganga

Fyrir Alþingi liggur frumvarp til laga um breytingar á búvörulög, þar sem lagt er til að felldar verði úr gildi fyrrgreindar undanþáguheimildir frá samkeppnislögum (sjá þingskjal 107 – 107. mál). Í ljósi dóms Hæstaréttar ítrekar Samkeppniseftirlitið mikilvægi þess að frumvarpið verði að lögum hið fyrsta. Eins og Samkeppniseftirlitið hefur fært ítarleg rök fyrir geta samkeppnishamlandi samrunar og samstarf kjötafurðastöðva haft í för með sér óafturkræft tjón fyrir bændur og neytendur.

Árétta verður í þessu sambandi að gildandi undanþáguheimildir eiga sér ekki fordæmi í nágrannalöndum. Nefna má að eftirliti með samrunum kjötafurðastöðva hefur ítrekað verið beitt til þess að vernda bændur gagnvart afli viðsemjenda sinna.

Um þetta vísast nánar til umsagnar Samkeppniseftirlitsins til atvinnuveganefndar Alþingis, dags. 27. mars 2025, og umsagnar til matvælaráðuneytisins (nú atvinnuvegaráðuneytis), dags. 19. júní 2024.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.