Ekkert stendur í vegi þess að Festi geti opnað verslun á Hellu – leiðrétting á fréttaflutningi
Í frétt í Viðskiptablaðinu í gær var fjallað um dagvöruverslun á Hellu og rætt við sveitarstjóra Rangárþings Ytra, Jón G. Valgeirsson. Í fréttinni er ranglega fullyrt að fyrirtækið Festi sem rekur verslanir undir merkjum Krónunnar geti ekki opnað verslun á Hellu á meðan í gildi er sátt Festi við Samkeppniseftirlitið vegna samruna N1 og Festi á árinu 2018.
Samruninn raskaði samkeppni
Við rannsókn á samruna N1 og Festi árið 2018 kom í ljós að samruninn myndi raska samkeppni í sölu dagvöru á svæði í kringum Hellu og Hvolsvöll þar sem nánast öll dagvörusala á svæðinu yrði í höndum Festi í kjölfar samrunans. Hefði Festi þar með haft í hendi sér að hækka verð og draga úr þjónustu á svæðinu, s.s. þrengja opnunartíma. Könnun á meðal viðskiptavina verslana á svæðinu studdi þessa niðurstöðu.
Skilyrði kváðu á um sölu verslunar
Til að bregðast við þessari stöðu lagði Festi til sölu á verslun Kjarvals á Hellu. Fram kom í málinu að húsnæði Festi á Hellu hentaði illa fyrir stærri dagvöruverslun (lágvöruverðsverslun eins og Krónuna). Lágvöruverslun var því ekki til staðar á Hellu á þeim tíma.
Samkeppniseftirlitið féllst á þessa tillögu Festi. Í söluskilyrðum var gerð krafa um að kaupandi myndi reka sambærilega verslun og Kjarval í verslunarhúsnæðinu. Á grundvelli þess keypti Samkaup reksturinn og var hin nýja verslun, Kjörbúðin, talin sambærileg þeirri sem fyrir var.
Festi og öðrum dagvöruverslunum er frjálst að opna verslanir á Hellu
Rétt er að undirstrika að ekkert í sáttinni kemur í veg fyrir að Festi, eða aðrir dagvörusalar, opni lágvöruverðsverslun á Hellu. Samkvæmt sáttinni skuldbatt Festi sig einvörðungu til þess að kaupa ekki eða leigja sama húsnæði í 10 ár frá sölu á verslun Kjarvals. Sáttin takmarkar því ekki möguleika Festi á opnun lágvöruverðsverslunar í öðru hentugu húsnæði á svæðinu.