Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Fjárframlög til Samkeppniseftirlitsins hafa ekki haldið í við þróun verkefnaumfangs

12. desember 2023

Fjárframlög til samkeppnismála hér á landi hafa verið til
umræðu undanfarna mánuði og þá
sérstaklega í tengslum við fjárlög 2024. Í tilefni þess hefur Samkeppniseftirlitið
unnið greiningu á þróun fjárframlaga til stofnunarinnar og sett hana í samhengi
við þróun launakostnaðar, vísitölu neysluverðs, vergrar landsframleiðslu og
fjölda fyrirtækja á Íslandi frá 2014-2024. 

Þá er einnig fjallað um fjölda
unninna ársverka hjá stofnuninni og þróun þeirra yfir tíma eftir meginverkefnum,
í samanburði við verkefnaumfang sem helgast fyrst og fremst af þróun
atvinnulífs á Íslandi.

Greiningin hefur nú verið birt á heimasíðu
Samkeppniseftirlitsins sem umræðuskjal
nr. 3/2023
.

Helstu niðurstöður greiningarinnar eru eftirfarandi:

  • Fjárframlög til Samkeppniseftirlitsins hafa
    lækkað, á föstu verðlagi, um 20% frá árinu 2014 til 2024 á meðan umsvif í
    efnahagslífinu hafa aukist um 35-40%.
  • Fjárframlög til eftirlitsins árið 2024 væru um 1
    milljarður króna ef þau hefðu fylgt breytingum á umsvifum í efnahagslífinu frá
    árinu 2014 (í stað 582 milljóna króna framlags samkvæmt fjárlagafrumvarpi). Ef
    miðað væri við að þau hefðu haldist óbreytt á föstu verðlagi frá árinu 2014
    væru þau um 723 milljónir króna.
  • Vægi samrunamála hefur aukist verulega
    síðastliðin ár, bæði vegna umfangsmikilla samruna og aukinnar áherslu á
    hagfræðilega greiningu. Vegna lögbundinna tímafresta þarf ávallt að
    forgangsraða rannsóknum á samrunum fram yfir önnur verkefni. Aukið álag vegna
    rannsókna samrunamála samsvarar aukningu um 3-4 ársverk og virðist breytingin
    vera varanleg.
  • Á árunum 2019-2022 hafa rannsóknir á ólögmætu
    samráði og samkeppnishamlandi samrunum tekið mestan tíma eftirlitsins eða sem
    samsvarar 14 ársverkum að meðaltali.

Bakgrunnsupplýsingar

Samkeppniseftirlitið veitti fjárlaganefnd Alþingis umsögn
um frumvarp til fjárlaga með bréfi dagsettu 14. nóvember 2023. Umsögninni
fylgdi minnisblað, Fjárheimildir
Samkeppniseftirlitsins – Þarfagreining og þróun
, þar sem gerð er ítarleg
grein fyrir ráðstöfun mannafla síðastliðin ár og lagt mat á þann mannafla sem
eftirlitið þurfi að hafa til þess að geta sinnt lögmætu hlutverki sínu með
fullnægjandi hætti.

Í umsögninni og minnisblaðinu er einnig fjallað um þróun
fjárheimilda Samkeppniseftirlitsins á árunum 2014 til 2024.

Þann 8. desember 2023 sendi Samkeppniseftirlitið síðan viðbótarumsögn
vegna fjárlagafrumvarpsins, þar sem þess var farið á leit við nefndina að fjárframlög
til eftirlitsins yrðu tekin til frekari umfjöllunar þegar frumvarpið kæmi að
nýju til nefndarinnar eftir 2. umræðu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.