Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Framkvæmdastjórn ESB rannsakar mögulegt brot á samrunareglum

27. ágúst 2021

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið rannsókn á
því hvort að líftæknifyrirtækin Illumina og GRAIL hafi brotið í bága við bann
samrunareglugerðar Evrópusambandsins við því að samruni komi til framkvæmdar
áður en rannsókn er lokið.

Forsaga málsins er sú að 19. apríl 2021 samþykkti framkvæmdastjórnin að taka fyrir beiðnir nokkurra samkeppniseftirlita í Evrópu ,
þ.á.m. Samkeppniseftirlitsins, vegna fyrirhugaðs samruna Illumina og GRAIL. Beiðnirnar
voru gerðar vegna mögulegrar röskunar samrunans á samkeppni og nýsköpun á
markaði fyrir þróun og markaðssetningu á krabbameinsskimunum byggðum á
DNA-raðgreiningu.

Ásamt Samkeppniseftirlitinu skiluðu systurstofnanir þess í
Belgíu, Frakklandi, Grikklandi, Hollandi og Noregi inn beiðni um athugun til
framkvæmdastjórnarinnar. Þann 22. júlí tók framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
svo ákvörðun um að hefja formlega rannsókn á mögulegum skaðlegum áhrifum
samrunans. Í kjölfarið óskaði framkvæmdastjórnin eftir gögnum frá fyrirtækjunum
sem var ekki skilað. Þann 18. ágúst tilkynnti Illumina svo um yfirtöku á GRAIL
þrátt fyrir að rannsókn á samrunanum væri enn í fullum gangi hjá
framkvæmdastjórninni.

Margrethe Vestager, formaður samkeppnisnefndar
framkvæmdastjórnar ESB, segir ákvörðun fyrirtækjanna mikil vonbrigði í
fréttatilkynningu sem framkvæmdastjórnin sendi frá sér.

„Ákvörðun Illumina um framkvæmd samrunans við GRAIL á
meðan rannsókn okkar er enn í gangi er okkur mikil vonbrigði. Fyrirtæki verða
að virða samkeppnislög og regluverkið. Reglan um bið á framkvæmd samruna á
meðan rannsókn stendur yfir er eitt af hryggjarstykkjunum í rannsóknum á
samrunum og við lítum þessi mögulegu brot á henni mjög alvarlegum augum. Af
þeim sökum hefur framkvæmdastjórnin þegar hafið rannsókn á málinu,“
segir
Vestager en hér má nálgast fréttatilkynningu framkvæmdastjórnarinnar um málið.   

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.