Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Norsk samkeppnisyfirvöld staðfesta um 60 milljarða sektir á dagvörukeðjur vegna gagnkvæmrar söfnunar á verðupplýsingum – Mikilvægt að dagvöruverslanir á Íslandi leggi mat á sína framkvæmd

8. ágúst 2025

Þann 21. ágúst síðastliðinn staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála í Noregi ákvörðun norska samkeppniseftirlitsins um að leggja stjórnvaldssektir á þrjár dagvörukeðjur vegna ólögmæts samráðs þeirra á milli. Ákvörðunin var staðfest í heild sinni, þar á meðal stjórnvaldssektir að fjárhæð 4,9 milljarðar norskra króna (um 60 milljarðar íslenskra króna). Málið beinist að dagvörukeðjunum Coop, Norgesgruppen og Rema, sem hafa samanlagt um 95% hlutdeild á norska dagvörumarkaðnum.

Samráðið fólst í söfnun á verðupplýsingum

Brotin fólust í umfangsmikilli gagnkvæmri söfnun dagvörukeðjanna á upplýsingum um verðlagningu dagvara hjá keppinautum, sem nýtt var innanhúss við ákvarðanir um verð.

Tildrög málsins voru þau að ACNielsen í Noregi hætti að miðla milli keðjanna upplýsingum um verðlagningu dagvara, eftir að norska eftirlitið hafði bent á að slík upplýsingamiðlun kynni að skaða samkeppni og brjóta gegn samkeppnislögum. Í framhaldinu gerðu dagvörukeðjurnar sem ákvörðunin beinist að með sér samkomulag um verðsamanburð sem fól m.a. í sér gagnkvæmar heimsóknir þeirra í verslanir hvorrar annarrar, í því skyni að safna verðupplýsingum. Fyrirtækin sammæltust einnig um nánari útfærslu á söfnun verðupplýsinga sem fól í sér rafræna skönnun á verðum í verslunum keðjanna. Þessi gagnkvæma upplýsingasöfnun var síðar útvíkkuð frekar af hálfu fyrirtækjanna.

Norska áfrýjunarnefndin staðfestir sektir og alvarleika brota

Í úrskurði norsku nefndarinnar kemur m.a. fram að upplýsingasöfnunin hafi veitt hverri dagvörukeðju fyrir sig vissu um að keppinautarnir myndu bregðast hratt við verðbreytingum. Verðlækkanir myndu því tæpast skila árangri, vegna skjótra viðbragða keppinautanna. Verðhækkanir væru hins vegar líklegri til að skila árangri, þar sem keppinautarnir hefðu tilhneigingu til þess að bregðast við þeim með eigin hækkunum.

Áfrýjunarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að samstarfið væri til þess fallið að hækka verð á dagvörum, til tjóns fyrir norska neytendur til langrar framtíðar.

Mikilvægt að íslenskar dagvöruverslanir kynni sér niðurstöðuna og leggi mat á eigin framkvæmd

Samkeppniseftirlitið hefur á liðnum árum varað við því að fyrirtæki hér á landi og hagsmunasamtök þeirra miðli upplýsingum milli keppinauta um verðlagningu og verðlagningaráform, sbr. t.d. leiðbeiningarsíðu Samkeppniseftirlitsins og nú síðast í tilkynningu á heimasíðu eftirlitsins, dags. 18. desember 2024. Þá var miðlun verðupplýsinga milli Byko og Húsasmiðjunnar talin fela í sér alvarleg brot, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands í máli nr. 42/2019.

 

 

Bakgrunnsupplýsingar um umrædda rannsókn norskra samkeppnisyfirvalda:

  • Norska samkeppniseftirlitið hóf forskoðun á málinu árið 2016.
  • Húsleit var framkvæmd hjá fyrirtækjunum í apríl 2018.
  • Norska samkeppniseftirlitið birti fyrirtækjunum andmælaskjal í desember 2020.
  • Norska samkeppniseftirlitið tók ákvörðun í málinu 21. ágúst 2024.
  • Áfrýjunarnefnd samkeppnismála birti úrskurð sinn 21. ágúst 2025 þar sem ákvörðun norska eftirlitsins var staðfest.

Stjórnvöld í ýmsum löndum, þar á meðal í Noregi, hafa á undanförnum árum aukið fjárveitingar til eftirlits með samkeppni á dagvörumörkuðum í því skyni að sporna gegn verðhækkunum til framtíðar.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.