4.3.2020

Samkeppniseftirlitið veitir undanþágu sem gerir ferðaþjónustunni betur kleift að bregðast við COVID-19

Í gær barst Samkeppniseftirlitinu erindi frá Samtökum í ferðaþjónustu (SAF) þar sem óskað var eftir undanþágu frá banni við samkeppnishindrandi aðgerðum og samráði fyrirtækja, til þess að samtökin gætu auðveldar ferðaþjónustuaðilum að bregðast við breyttum aðstæðum vegna COVID-19.

Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun sinni í dag veitt SAF umbeðna undanþágu, sem gerir þeim betur kleift grípa til aðgerða sem ætlað er að verja eða auka eftirspurn eftir íslenskri ferðaþjónustu. Meðal annars gerir þetta SAF kleift að standa fyrir umfjöllun um leiðir til að auðvelda viðskiptavinum aðildarfyrirtækja að taka ákvarðanir um kaup á ferðaþjónustu og auka svigrúm viðskiptavina til að bregðast við áhættu af útbreiðslu COVID-19 og annarri þróun sem henni tengist.

Undanþágan er veitt með nánar tilgreindum skilyrðum. Ákvörðun nr. 9/2020 er aðgengileg hér.