Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Morgunblaðsins og Fréttablaðsins

13. febrúar 2009
snowcap mountain

Morgunbladid_og_FrettabladidSamkeppniseftirlitið hefur í dag ógilt samruna Árvakurs hf., Fréttablaðsins ehf. og Pósthússins ehf. Af honum hefði leitt að Morgunblaðið, Fréttablaðið ehf., Landsprent ehf. (prentsmiðja Árvakurs) og Pósthúsið ehf. (sem nú annast dreifingu Fréttablaðsins) hefðu verið í eigu eins og sama aðila, Árvakurs. Þá hefðu 365 miðlar ehf. ennfremur komið inn í hluthafahóp Árvakurs sem stærsti hluthafinn með ríflega þriðjungs hlut.

Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samruninn hefði falið í sér mjög alvarlegar samkeppnishömlur á mörkuðunum fyrir útgáfu dagblaða, auglýsingar í dagblöðum, dreifingu dagblaða og prentun dagblaða. Hefðu samkeppnishömlurnar fyrst og fremst falist í því að markaðsráðandi staða eða einokun myndaðist á öllum mörkuðum málsins, enda hefðu tveir meginkeppinautarnir á viðkomandi mörkuðum sameinast. Með þessu hefði Morgunblaðið og Fréttablaðið verið í eigu sama aðila og misst sjálfstæði sitt gagnvart hvort öðru. Er það til þess fallið að draga úr fjölbreytni í efni og efnistökum hvors dagblaðs um sig og myndi það fela í sér verulegan skaða fyrir lesendur. 

Í málinu var því haldið fram að samruninn væri óhjákvæmilegur vegna erfiðrar fjárhagsstöðu umræddra fyrirtækja, en Samkeppniseftirlitið getur að vissum skilyrðum uppfylltum heimilað samruna á þeim grundvelli. Þó ljóst væri að fjárhagsstaða fyrirtækja á þessum markaði væri erfið tókst samrunaaðilum ekki að sýna fram á að þessi skilyrði væru uppfyllt.

Samkeppniseftirlitið sendi samrunaaðilum andmælaskjal þann 4. desember sl., en í því var frummati eftirlitsins lýst og þeim gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Félögin brugðust við með því að óska viðræðna um hvort unnt væri að heimila samrunann með skilyrðum í stað þess að ógilda hann. Samkeppniseftirlitið var reiðubúið að taka til skoðunar hvort unnt væri að heimila með skilyrðum samruna og samstarf í dagblaðaprentun og dagblaðadreifingu. Hugmyndir samrunaaðila byggðu á því að Fréttablaðið, ásamt Morgunblaðinu, yrði prentað hjá Landsprenti, sem áfram yrði í eigu Árvakurs. 365 miðlar ehf. myndu hins vegar ekki eignast hlut í Árvakri. Dagblaðadreifing yrði á vettvangi Pósthússins ehf. sem yrði í sameiginlegri eigu Árvakurs og 365 miðla ehf. Viðræður um þetta áttu sér einkum stað í desember. Vegna ítrekaðra óska samrunafyrirtækjanna til Samkeppniseftirlitsins um að fresta afgreiðslu málsins lá afstaða þeirra til hugsanlegra skilyrða ekki fyrir fyrr en nú í febrúar. Viðræðum félaganna og Samkeppniseftirlitsins lauk án þess að sátt næðist um skilyrðin. Var annað félagið ekki tilbúið að fallast á skilyrði sem voru nauðsynleg til þess að afstýra samkeppnishömlum. Er samruninn því ógiltur.

Sjá nánar ákvörðun nr. 6/2009.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.