Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Viðskiptabönkum, sparisjóðum, lífeyrissjóðum og Íbúðalánasjóði veitt heimild til að samræmdrar beitingar greiðsluerfiðleikaúrræða

24. apríl 2009
snowcap mountain

SE_SkjaldamerkiSamkeppniseftirlitið hefur í dag veitt viðskiptabönkum, sparisjóðum, lífeyrissjóðum og Íbúðalánasjóði heimild til að samræmdrar beitingar greiðsluerfiðleikaúrræða vegna einstaklinga með fasteignaveðlán. Ákvörðunin lýtur annars vegar að samkomulagi fyrirtækja á fjármálamarkaði, félags- og tryggingarmálaráðuneytis og viðskiptaráðuneytis, um samræmda beitingu greiðsluerfiðleikaúrræða, frá 3. apríl sl., og hins vegar samkomulagi um beitingu greiðslujöfnunar gengistryggða fasteignaveðlána til einstaklinga, frá 8. apríl sl.

Í ákvörðuninni kemur fram forsendur séu til þess að veita heimild til umrædds samstarfs þar sem samningarnir séu til verulegs hagræðis fyrir skuldara og jafnvel kröfuhafa eins og á stendur. Þýðingu hefur í þessu sambandi að samningarnir eru uppsegjanlegir og tímabundnir og hindra ekki keppinauta í að beita frekari úrræðum viðskiptavinum til hagsbóta. Því eru samningarnir heimilaðir með vísan í 15. gr. samkeppnislaga.

Skilyrði sett til að vernda samkeppni

Í því skyni að vinna gegn því að umrædd samræming greiðsluerfiðleikaúrræða leiði af sér frekari samræmingu á viðskiptaskilmálum sem til tjóns yrði fyrir samkeppni, neytendur og atvinnulíf, er í ákvörðuninni mælt fyrir um sérstaka upplýsingagjöf til Samkeppniseftirlitsins um viðskiptaskilmála einstakra fyrirtækja á fjármálamarkaði sem aðilar eru að samkomulaginu. Þá er því beint til umboðsmanna viðskiptavina sem skipaðir hafa verið hjá ríkisbönkunum þremur að þeir stuðli að því að viðkomandi bankar starfi í samræmi við ákvörðunina.

Málsmeðferð

Samkeppniseftirlitinu bárust erindi vegna samninganna þann 6. og 8. apríl.  Lokagögn vegna athugunar Samkeppniseftirlitsins bárust frá málsaðilum þann 15. og 21. apríl. Áður hafði Samkeppniseftirlitið veitt Samtökum fjármálafyrirtækja undanþágu frá samkeppnislögum til að móta sameiginlegt verklag um hvernig unnt væri að koma til móts við þá sem eiga í alvarlegum greiðsluerfiðleikum, með bréfi dags. 30. janúar sl. Afrakstur þeirrar vinnu var borin undir Samkeppniseftirlitið með fyrrgreindum erindum, sem nú eru tekin til ákvörðunar.

Sjá nánar ákvörðun nr. 16/2009.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.