Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Fréttatilkynning – Opinber útboð, samkeppni og samkeppnishindranir

23. desember 2009
snowcap mountain
  • SE_SkjaldamerkiSamkeppniseftirlitið hefur í dag beint því til opinberra aðila að fylgjast markvisst með því að farið sé að samkeppnislögum við framkvæmd útboða. Útbúinn hefur verið sérstakur gátlisti sem auðvelda á útboðsaðilum að koma auga á ólögmætt samráð.
  • Samkeppniseftirlitið beinir því jafnframt til opinberra aðila að útboðum verði beitt þegar slíkt er hagkvæmt og því verður við komið. Að mati Samkeppniseftirlitsins er þetta mikilvægt til þess að efla samkeppni og bæta nýtingu þeirra fjármuna sem varið er í opinber innkaup á vöru, þjónustu og verklegum framkvæmdum. Sveitarfélög eru sérstaklega hvött til þess að beita útboðum við kaup á vörum og þjónustu.

Þessi tilmæli koma fram í áliti Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2009, Opinber útboð, samkeppni og samkeppnishindranir.

Í álitinu  kemur fram að opinber útboð geta skilað miklum árangri. Vísað er til norrænna skýrslna um opinber útboð, þar sem m.a. kemur fram að andvirði vöru og þjónustu sem var útboðsskyld á árinu 2006 í Svíþjóð hafi numið um 15-18% af vergri landsframleiðslu í landinu það ár. Ljóst er að mati Samkeppniseftirlitsins að þótt ekki liggi fyrir nákvæmar tölur um umfang opinberra útboða eða útboðsskyldra innkaupa hérlendis er um verulegar fjárhæðir  að ræða. Því mikilvægt að gæta þess að farið sé að samkeppnislögum og útboð viðhöfð til að nýta krafta samkeppninnar þegar útboðum verður við komið og þau eru hagkvæm.

Þá er vísað til þess í álitinu að dæmi eru um að fyrirtæki hafi reynt að hafa áhrif á útboð með ólögmætum hætti. Í álitinu eru rakin nokkur hérlend dæmi um þetta sem varða einkum olíumarkað, en einnig sjóflutninga o.fl. Með slíkum samkeppnishindrunum hafa viðkomandi fyrirtæki gert að engu væntingar þeirra sem að útboðunum hafa staðið um lægra verð, meiri gæði og aukna nýsköpun. Alþjóðlegar rannsóknir sýna að verð getur hækkað um 10-30% og í ákveðnum tilvikum um allt að 50% þegar keppinautar stunda ólögmætt samráð. Því er mjög mikilvægt er að stemma stigu við ólögmætu samráði og öðrum samkeppnishömlum í útboðum.

Bakgrunnsupplýsingar
Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2008, Öflug uppbygging – opnun markaða og efling atvinnustarfsemi, sem kom út í nóvember 2008, var m.a. vikið að mikilvægi opinberra útboða í einstökum köflum. Þar kemur m.a. fram að útboð af hálfu opinberra aðila séu almennt til þess fallin að efla samkeppni, auðvelda aðgang nýrra aðila að markaðnum og efla nýsköpun. Í sameiginlegri skýrslu norrænu samkeppniseftirlitanna sem kom út í september 2009, Competition Policy and Financial Crises – Lessons Learned and the Way Forward kom skýrt fram að með opinberum útboðum mætti ná fram mikilvægum efnahagslegum hvata.

Í kjölfar þess að framangreind skýrsla kom út var fjármálaráðherra greint frá því að Samkeppniseftirlitið hefði hug á að gefa út álit vegna opinberra útboða. Jafnframt var sent bréf sama efnis til Ríkiskaupa og Framkvæmdasýslu ríkisins, en þessar stofnanir hafa almennt með útboð að gera. Þá hefur Samkeppniseftirlitið rætt við ýmsa aðila og aflað gagna af þessu tilefni og hefur Samkeppniseftirlitið haft hliðsjón af þessum gögnum og sjónarmiðum í áliti þessu.

Samkvæmt samkeppnislögum er Samkeppniseftirlitinu ætlað það hlutverk að gæta þess að aðgerðir opinberra aðila takmarki ekki samkeppni og benda stjórnvöldum á leiðir til þess að gera samkeppni virkari og auðvelda aðgang nýrra samkeppnisaðila á markaði. Þetta gerir Samkeppniseftirlitið m.a. með því að beina opinberum álitum til stjórnvalda.

Sjá nánar álit nr. 4/2009.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.