Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Síminn sektaður um 60 milljónir króna vegna tilboðs í 3G netlykil og áskrift sumarið 2009

20. september 2011
snowcap mountain

Mynd: Merki SímansSíminn misnotaði markaðsráðandi stöðu sína með tilboðinu sem fyrirtækið gerði notendum sumarið 2009 í „3G netlykill og áskrift fyrir 0 kr. í allt sumar“.  Er Símanum gert að greiða 60 milljónir króna í stjórnvaldssekt.

Í umræddu tilboði Símans fólst að nýjum viðskiptavinum Símans í gagnaflutnings-þjónustu, þar sem 3G netlykill er notaður, var boðinn  frír 3G netlykill og frí áskrift að þjónustunni í allt að þrjá mánuði gegn bindingu í viðskiptum í sex mánuði. Fjarskiptafyrirtækið Nova kvartaði til Samkeppniseftirlitsins yfir tilboðinu. Tók Samkeppniseftirlitið bráðabirgðaákvörðun dags. 2. júlí 2009, þar sem Símanum var bannað að bjóða umrætt tilboð.

Í endanlegri ákvörðun, dags. 16. september sl. nr. 30/2011, kemst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi verið með markaðsráðandi stöðu á viðkomandi markaði. Jafnframt er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Síminn hafi misnotaði þá stöðu sína með undirverðlagningu í framangreindu tilboði. Í undirverðlagningu felst í aðalatriðum að markaðsráðandi fyrirtæki selur vöru eða þjónustu undir kostnaðarverði.

Markaðsráðandi fyrirtækjum er heimilt að mæta samkeppni af afli, með hliðsjón af hagrænum aðstæðum hverju sinni, og ná skyldur markaðsráðandi fyrirtækja ekki til þess að hlífa keppinautum á viðkomandi markaði sem ekki geta staðist eðlilega samkeppni. Markaðsráðandi fyrirtækjum er hins vegar óheimilt að grípa til aðgerða sem fela í sér undirverðlagningu. Ef markaðsráðandi fyrirtæki mætir þannig samkeppni með verðlækkun sem ekki byggir á rekstrarlegri frammistöðu getur það gert það að verkum að skilvirk fyrirtæki, sem hafa ekki nægilegan fjárhagsstyrk til þess að standa af sér slíkt verðstríð, hrökklist af markaðnum þannig að dragi úr samkeppni á honum. Jafnvel þótt neytendur njóti þess til skamms tíma að fá vöru eða þjónustu á mjög lágu verði getur óeðlileg verðlækkun markaðsráðandi fyrirtækis valdið alvarlegri röskun á samkeppni til lengra tíma litið og skaðað þannig hagsmuni neytenda.

Háttsemi Símans fólst í aðgerðum sem ekki gátu talist til eðlilegrar samkeppni í skilningi samkeppnislaga og er. Símanum  gert að greiða 60 milljónir króna í stjórnvaldssekt.

Sjá nánar ákvörðun nr. 30/2011.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.