Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið hefur rannsókn á viðskiptakjörum birgja til dagvöruverslana

6. júlí 2012
snowcap mountain
Verslað í stórmarkaðiSamkeppniseftirlitið hefur ákveðið að hefja rannsókn á viðskiptakjörum nokkurra birgja til matvöruverslana. Þar verður rannsakað hvort mikill verðmunur í viðskiptum einstakra birgja við mismunandi verslanir hindri samkeppni og fari gegn samkeppnislögum. Í skýrslu eftirlitsins um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði sem kom út í janúar sl. var sýnt fram á mjög mikinn verðmun hjá einstökum birgjum eftir því hvaða verslanir eða verslanakeðjur áttu í hlut. Í skýrslunni voru leiddar að því lýkur að þessi mikli verðmunur hindraði samkeppni á dagvörumarkaði.

Leitað hefur verið skýringa á þessum mun hjá birgjum og er ljóst að þeim hefur hingað til ekki tekist að sýna fram á að verðmunurinn byggi á traustri greiningu á kostnaðarlegu hagræði sem réttlæti betri kjör. Þvert á móti hefur verið kallað eftir leiðbeiningu Samkeppniseftirlitsins um þessi efni. Af þeim sökum telur Samkeppniseftirlitið óhjákvæmilegt að hefja umrædda rannsókn og leggja mat á hvort viðskiptakjör tiltekinna birgja fari gegn ákvæðum samkeppnislaga.

Þann 26. janúar sl. gaf Samkeppniseftirlitið út skýrslu nr. 1/2012, Verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði. Í skýrslunni var m.a. komist að þeirri niðurstöðu að talsverðar aðgangshindranir væru að dagvörumarkaðnum á Íslandi. Var talið að þessar hindranir ættu ekki síst rót sína að rekja til mismunandi kjara sem dagvöruverslanir nytu hjá birgjum. Þrjár verslanakeðjur, Hagar, Kaupás og Samkaup, voru taldar vera með um 90% markaðshlutdeild. Aðrar minni verslanir sem ekki eru hluti af þessum keðjum greiddu að meðaltali 15% hærra verð en Hagar sem er stærsta verslanakeðjan. Þessar minni verslanir hefðu því mjög lítið út úr vörusölu sinni ef þær ætluðu sér að jafna það verð sem lágvöruverðsverslanir stóru keðjanna eins og t.d. Bónus og Krónan bjóða á mörgum algengum dagvörum.

Samkeppniseftirlitið sendi skýrsluna til umsagnar til dagvöruverslana, birgja og ýmissa hagsmunasamtaka fyrirtækja og hafa eftirlitinu borist fjölmörg svör og athugasemdir. Meðal þess sem óskað var upplýsinga um frá fyrirtækjum voru atriði sem réttlætt gætu lægra verð eða betri viðskiptakjör til verslana sem keyptu mikið magn, s.s. ef um væri að ræða dreifingu til birgðahúsa sem þau reka.

Samkeppniseftirlitið hefur undanfarið farið yfir athugasemdir aðila og undirbúið og ákveðið næstu skref í aðgerðum eftirlitsins á dagvörumarkaði. Ljóst er að þær skýringar og athugasemdir sem borist hafa frá fyrirtækjum fela ekki í sér ítarlega greiningu á því kostnaðarhagræði sem dreifing til birgðahúsa felur í sér eða annarra atriða sem réttlæta betri viðskiptakjör til þeirra verslana sem kaupa mikið magn. Mikill munur á viðskiptakjörum gerir hins vegar eins og fyrr segir minni verslunum erfiðara að veita stærri verslanakeðjum verðsamkeppni og þá einkum lágvöruverðsverslunum stóru keðjanna en þær hafa aukið hlutdeild sína mikið á liðnum árum.

Samkeppniseftirlitið hefur því ákveðið að hefja rannsókn á viðskiptakjörum nokkurra birgja til dagvöruverslana. Er m.a. um að ræða birgja sem eru með sterka stöðu í endursölu á dagvörum á þeim sviðum sem þeir starfa á. Mun rannsóknin beinast að því hvort viðskiptakjör þessara aðila til endurseljenda kunni að fara gegn þeim ákvæðum samkeppnislaga sem banna samninga sem hafa skaðleg áhrif á samkeppni og misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Einnig kemur til álita beiting nýs ákvæðis í samkeppnislögum sem felur í sér að Samkeppniseftirlitið getur gripið til aðgerða gegn aðstæðum og háttsemi sem kemur í veg fyrir, takmarkar eða hefur skaðleg áhrif á samkeppni almenningi til tjóns.

Samkeppniseftirlitið bendir á að uppfærð skýrsla nr. 1/2012 um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði er nú aðgengileg á heimasíðu eftirlitsins þar sem tekið hefur verið tillit til nokkurra ábendinga umsagnaraðila.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.