Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Aðgerðir til að efla samkeppni á viðskiptabankamarkaði – Sátt við Arion banka

20. júní 2017
snowcap mountain

Með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 24/2017, sem birt er í dag, er gerð grein fyrir sátt sem eftirlitið hefur gert við Arion banka um aðgerðir til þess að efla samkeppni í viðskiptabankaþjónustu. Þær aðgerðir sem kveðið er á um í sáttinni miða einkum að því að:

  1. 1. Draga úr kostnaði sem viðskiptavinir verða fyrir þegar skipt er um viðskiptabanka.
  2. 2. Stuðla að virkara samkeppnisaðhaldi af hálfu einstaklinga og lítilla fyrirtækja með þeim sem veita viðskiptabankaþjónustu á Íslandi.
  3. 3. Vinna gegn aðstæðum sem rennt gætu stoðum undir þögla samhæfingu á markaði/mörkuðum fyrir viðskiptabankaþjónustu.

Aðgerðirnar sem Arion banki tekst á hendur með sáttinni eru í öllum meginatriðum hliðstæðar þeim aðgerðum sem kveðið er á um í sátt Samkeppniseftirlitsins við Landsbankann – frétt . Viðræður við Íslandsbanka um sama efni eru á lokastigi.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins: „Með því að draga úr hindrunum fyrir viðskiptavini við að skipta um banka geta viðskiptavinir veitt bönkunum meira aðhald sem ætti m.a. að hafa það í för með sér að bankarnir þurfi að keppa meira um viðskiptavini, þ.m.t. bjóða þeim betri kjör og þjónustu til að halda í þá.“

Nánar um sáttina:

Með sáttinni skuldbindur Arion banki sig nánar tiltekið til að fylgja eftirfarandi skilyrðum í starfsemi sinni:

  • Uppgreiðslugjöld verða ekki lögð á umframgreiðslur skuldara inn á nein ný og útistandandi lán einstaklinga og lítilla fyrirtækja sem bera breytilega vexti, óháð því undir hvaða lögum viðkomandi lán voru upphaflega veitt. 
  • Hámörk eru innleidd á þóknanir við flutning bundins séreignalífeyrissparnaðar frá bankanum til annarra aðila sem bjóða upp á stýringu séreignalífeyrissparnaðar. Er þetta einkum til þess fallið að draga úr bindandi áhrifum slíkra gjalda á hreyfanleika viðskiptavina og stuðla þannig að virkara samkeppnisaðhaldi á þessu sviði. 
  • Yfirtaka á íbúðaláni í fasteignaviðskiptum verður ekki háð því að kaupandinn færi bankaviðskipti sín til bankans. Með bankaviðskiptum er hér átt við launareikning og e.a. samtímis önnur viðskipti.
  • Viðskiptavinum verður auðveldað að færa bankaviðskipti sín milli banka. Val, þróun og innleiðing kerfa og tæknilegra úrlausna mun miða að þessu og þjónustukannanir nýttar til að bera kennsl á áherslur viðskiptavina í tengslum við þetta og mun bankinn bregðast við þeim. 
  • Viðskiptavinir verða upplýstir sérstaklega um verulegar breytingar á vöxtum og verðskrá áður en þær eiga sér stað, til að gefa viðskiptavinum svigrúm til þess að færa viðskipti sín ef þeir svo kjósa. 
  • Bankinn mun búa svo um hnútana að allar upplýsingar um almennar þóknanir, kjör og skilmála, sem eru opinberlega birtar á vefsíðu bankans, verði aðgengilegar gegnum opið API viðmót (upplýsingatæknigátt fyrir sérsniðnar forritunarlausnir)  sem þriðju aðilar (einstaklingar, fyrirtæki eða félagasamtök) gætu sótt og nýtt til að setja upp samanburðarvefsíðu sem virkjað gæti skilvirkara neytendaaðhald.[1] Getur þetta jafnframt falið í sér ákveðin viðskiptatækifæri fyrir fyrirtæki sem áhuga hafa á að hasla sér völl á sviði fjármálatækni (e. FinTech) hérlendis.
  • Tiltekin heimildarákvæði í skilmálum íbúðalána sem fela í sér verulega bindingu að mati Samkeppniseftirlitsins, og upphaflega urðu tilefni rannsóknar af hálfu Samkeppniseftirlitsins, verða ekki virkjuð af bankanum.  

Sú sátt sem hér er kynnt felur jafnframt í sér innlegg í stefnumörkun sem stjórnvöld og bankarnir standa nú frammi fyrir á fjármálamarkaði í tengslum við breytingar á eignarhaldi bankanna og öra þróun í fjármálaþjónustu á alþjóðavettvangi. 

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.