Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið heimilar samstarf ferðaskrifstofa sem miðar að því að viðskiptavinir þeirra komist til síns heima og takmarka tjón af völdum COVID-19

14. mars 2020
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið hefur í dag heimilað samstarf ferðaskrifstofa með starfsleyfi frá Ferðamálastofu, sem miðar að því að tryggja að viðskiptavinir þeirra komist til síns heima og takmarka tjón sem hljótast mun af því fordæmalausa ástandi sem nú ríkir.

Samstarfið er bundið þeim skilyrðum að Ferðamálastofa meti samstarfið nauðsynlegt hverju sinni og að stofnunin sé þátttakandi eða sé gefinn kostur á að vera þátttakandi í öllum samskiptum sem lúta að samstarfinu. Tilgangur þessa er að tryggja að samstarf þessara keppinauta eigi sér aðeins stað að því marki sem Ferðamálastofa telur óhjákvæmilegt til að verja þá hagsmuni sem í húfi eru. Um leið er tryggt að Ferðamálastofa öðlist yfirsýn yfir þær aðgerðir sem keppinautar á markaðnum grípa til að þessu leyti.

Þá er Ferðamálastofu heimilt að kalla saman aðra ferðaþjónustuaðila til þess að meta hvernig brugðist skuli að öðru leyti við áhrifum heimsfaraldurs COVID-19 veirunnar á ferðaþjónustuna, neytendamarkaðinn og efnahagslífið almennt. Reynist þörf á frekari undanþágu frá banni við samstarfi þessara aðila, verður tekin afstaða til þess í sérstöku máli.

Við útfærslu samstarfs á grundvelli þessarar heimildar skal þess gætt að ekki komi til samræmingar á verði eða þjónustu umfram það sem óhjákvæmilegt er til þess að verja hagsmuni ferðamanna. Þannig verði þess m.a. gætt að samstarf keppinauta leiði ekki til þess að hægja á uppbyggingu ferðaþjónustu þegar um hægist, vegna skertrar samkeppni sem af samstarfinu gæti annars hlotist.

Ákvörðunin er aðgengileg hér.

Samkeppniseftirlitið hefur á síðustu dögum veitt Samtökum í ferðaþjónustu undanþágu til að bregðast við vanda sem stafar af COVID-19, sbr. ákvörðun nr. 9/2020. Einnig hefur eftirlitið heimilað samstarf sem miðar að því að tryggja fullnægjandi aðgengi að lyfjum, sbr. ákvörðun nr. 11/2020. Þá hefur eftirlitið á síðustu dögum heimilað samskipti fyrirtækja á ýmsum sviðum sem miðar að því að tryggja órofinn rekstur og fullnægjandi aðföng.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið skilar umsögn um frumvarp um lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti

  • 16. apríl 2026
  • Fréttir

Samkeppnismat lykilatriði til að efla samkeppnishæfni

  • 10. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.