Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Rýmkun á heimildum til lyfjaverslunar hefur jákvæð áhrif á hagsmuni neytenda

1. júní 2021
snowcap mountain

Sameiginleg afstaða norrænu
samkeppniseftirlitsanna til lyfjaverslunar

Samkeppniseftirlitið hefur beint áliti til
heilbrigðisyfirvalda þar sem vakin er athygli á nýrri skýrslu um samkeppni á
mörkuðum um netverslun lyfja, sem samkeppniseftirlitin á Norðurlöndum hafa
gefið út.

Með skýrslunni mælast norrænu samkeppniseftirlitin til
þess við stjórnvöld viðkomandi landa að lagaumgjörð vegna smásölu lyfja verði
tekin til skoðunar. Sérstaklega er bent á að skilyrði um að heimild til
netverslunar sé bundin við rekstur hefðbundinnar lyfjaverslunar feli í sér
aðgangshindranir sem torveldi samkeppni.

Helstu niðurstöður skýrslunnar eru eftirfarandi:

  •  Munur er á milli landa á heimildum til að stunda
    netverslun. Í Svíþjóð og Danmörku er heimilt að starfrækja netverslun með lyf
    án þess að viðkomandi lyfsöluleyfishafi reki jafnframt lyfjaverslun. Í Noregi,
    Finnlandi og á Íslandi þarf viðkomandi lyfsöluleyfishafi að hafa heimild til
    reksturs lyfjaverslunar til að geta sótt um heimild til að starfrækja
    netverslun með lyf. Þannig er ekki heimilt að stunda eingöngu netverslun með
    lyf í þessum löndum. Þessi munur á reglum leiðir óhjákvæmilega til þess að
    mikill munur er á samkeppni í sölu lyfja. Fyrir liggur að í Svíþjóð hafa
    netverslanir með lyf t.a.m. veitt hefðbundnum lyfjaverslunum mikið
    samkeppnislegt aðhald.
  • Mikill munur á milli landanna á því hvort
    heimilt sé að selja lyf, sem ekki eru lyfseðilsskyld, utan lyfjaverslana. Í
    Svíþjóð eru rýmri heimildir til að selja ólyfseðilsskyld lyf utan lyfjaverslana
    heldur en annars staðar á Norðurlöndunum, þ.á m. á Íslandi þar sem nokkuð
    strangar takmarkanir gilda. Meiri verðsamkeppni á þessum lyfjum í Svíþjóð hefur
    leitt til lægra verðs til neytenda.

Norrænu samkeppniseftirlitin eru meðvituð um mikilvægi
þess að tryggja öryggi neytenda við lyfsölu. Skýrslan sýnir hins vegar að til
eru leiðir til að stuðla í senn að öryggi við lyfsölu og virkari samkeppni
neytendum til hagsbóta. Að mati Samkeppniseftirlitsins er tilefni til að
íslensk stjórnvöld á þessu sviði taki til skoðunar framangreind atriði og
umfjöllun í skýrslunni með það að markmiði að auka samkeppni í lyfsölu á
Íslandi.

Álit til heilbrigðisráðherra er aðgengilegt hér 

Skýrslan er aðgengileg hér

Sameiginleg frétt norrænu eftirlitanna á ensku er
aðgengileg hér

Bakgrunnsupplýsingar:

Álitið
er sett fram á grundvelli samkeppnislaga, en samkvæmt þeim skal Samkeppniseftirlitið gæta þess að aðgerðir opinberra
aðila takmarki ekki samkeppni, vekja athygli ráðherra á ákvæðum laga sem ganga
gegn markmiðum samkeppnislaga og benda stjórnvöldum að öðru leyti á leiðir til
að gera samkeppni virkari og auðvelda
aðgang nýrra keppinauta að markaði.

Norrænu samkeppniseftirlitin hafa með sér náið samstarf
sem miðar að því að samnýta þekkingu þeirra og reynslu og vinna saman að
rannsóknum þegar við á. Liður er í samstarfinu er að eftirlitin taka
samkeppnisaðstæður á ýmsum sviðum til sameiginlegrar athugunar og hafa birt um
það allmargar skýrslur. Þessi skýrsla er ein af þeim.

Norrænu samkeppniseftirlitin hafa áður fjallað um
samkeppnisaðstæður á lyfjamarkaði, sbr. sameiginlega skýrslu eftirlitanna frá
árinu 2008, Konkurransemessige
problemstillinger i apotek og legemiddelsektoren

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.