Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið áfrýjar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur

2. desember 2024
snowcap mountain

Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp 18. nóvember sl., var komist að þeirri niðurstöðu að nýlegar undanþágur frá samkeppnislögum, sem heimila kjötafurðastöðvum að sameinast og hafa tiltekið samráð sín á milli, stríði gegn stjórnskipunarlögum og hafi því ekki lagagildi.

Í tilefni af dóminum sendi Samkeppniseftirlitið kjötafurðastöðvum og samtökum þeirra bréf. Í þeim var vakin athygli á því að samkvæmt dómi héraðsdóms samræmdust undanþáguheimildir búvörulaga ekki stjórnskipunarlögum og öðluðust því ekki lagagildi. Vegna þessa gildi samkeppnislög fullum fetum um samstarf og samruna kjötafurðastöðva. Hafi kjötafurðastöðvar því ekki notið neinnar undanþágu frá ákvæðum samkeppnislaga.

Gaf Samkeppniseftirlitið kjötafurðastöðvum kost á að koma á framfæri sjónarmiðum sem nýtast kunna við athugun á því hvernig bregðast skuli við dómi héraðsdóms. Jafnframt hefur eftirlitið gefið öðrum áhugasömum kost á að koma sjónarmiðum á framfæri og átt fundi og samtöl vegna málsins, sbr. tilkynning eftirlitsins frá 19. nóvember sl.

Samkvæmt lögum um meðferð einkamála er Samkeppniseftirlitinu heimilt að óska eftir leyfi til að áfrýja dómi héraðsdóms beint til Hæstaréttar. Er heimilt að veita slík leyfi ef niðurstaða máls getur haft fordæmisgildi, haft almenna þýðingu fyrir beitingu réttarreglna eða haft verulega samfélagslega þýðingu að öðru leyti.

Að virtum framkomnum sjónarmiðum er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að óska eftir leyfi til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 18. nóvember sl. beint til Hæstaréttar. Að mati Samkeppniseftirlitsins hefur niðurstaða málsins augljóst fordæmisgildi um heimild til þess til að beita samkeppnislögum vegna samruna kjötafurðastöðva og annarrar háttsemi slíkra félaga sem kann að fara gegn ákvæðum samkeppnislaga. Þá hefur niðurstaða málsins að mati eftirlitsins almenna þýðingu um stjórnskipulegt gildi laga nr. 30/2024 um breytingu á búvörulögum og þann áskilnað sem felst í 44. gr. stjórnar­skrár­innar um að ekkert lagafrumvarp megi samþykkja fyrr en það hafi verið rætt við þrjár umræður á Alþingi. Jafnframt hefur niðurstaða málsins verulega samfélagslega þýðingu þegar litið er til þeirra áhrifa sem undanþáguheimildir búvörulaga hafa á starfsskilyrði bænda og samkeppni á kjötmarkaði.

Samkeppniseftirlitið hefur einnig í dag ritað kjötafurðastöðvum og samtökum þeirra bréf. Er þar greint frá ákvörðun eftirlitsins um að áfrýja dómi héraðsdóms. Jafnframt er þeim tilmælum beint til viðkomandi aðila að grípa ekki til neins konar aðgerða sem farið geta gegn samkeppnislögum á meðan mál þetta er fyrir dómstólum. 

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.