Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið telur ekki forsendur til að fella niður öll skilyrði um starfsemi Símans þrátt fyrir sölu á Mílu til Ardian

6. júlí 2023

Samkeppniseftirlitið hefur tekið ákvörðun vegna beiðni
Símans um endurskoðun á skilyrðum sem hvíla á fyrirtækinu og voru fyrst sett á
grundvelli sáttar þess við Samkeppniseftirlitið árið 2013 en endurskoðuð
árið 2015.

Eitt meginmarkmið sáttarinnar var að tryggja
sjálfstæði Mílu, sem þá var dótturfélag Símans, þannig að auðveldara væri fyrir
keppinauta Símans í smásölu að eiga viðskipti við Mílu á sömu forsendum og
Síminn. Þannig var meðal annars kveðið á um aðskilnað fyrirtækjanna að miklu leyti ásamt
frekari skuldbindingum sem voru til þess fallnar að efla samkeppni á
fjarskipta- og sjónvarpsmörkuðum hér á
landi.

Við sölu á Mílu
frá Símanum til franska fyrirtækisins Ardian á síðasta ári féllu niður skilyrði
fyrrgreindrar sáttar frá 2015 gagnvart Mílu enda gerðu Samkeppniseftirlitið og
Ardian með sér sérstaka sátt um tiltekin skilyrði fyrir kaupum Ardian á Mílu. Voru
það skilyrði sem meðal annars tryggðu að Síminn gæti beint tilteknu hlutfalli af
viðskiptum sínum til annarra innviðafyrirtækja en Mílu. Þá voru Mílu einnig
sett takmörk um samtvinnun á þjónustu sinni.

Eftir standa þó
skilyrði frá 2015 gagnvart Símanum, meðal annars um hegðun fyrirtækisins og viðskipti þess
í heildsölu. Beiðni Símans byggir einkum á því að fella megi þau skilyrði sem
áfram giltu niður þar sem Míla og Síminn séu ekki lengur lóðrétt tengd auk þess
sem markaðsaðstæður hafi breyst mikið á liðnum árum og styrkur Símans á
fjarskipta- og sjónvarpsmörkuðum ekki eins mikill og þegar sáttin var gerð í
upphafi.

Eftir athugun í málinu er það niðurstaða
Samkeppniseftirlitsins að ekki séu forsendur til að fella niður mikilvæg efnisskilyrði
í sáttinni frá 2015 gagnvart Símanum, að svo stöddu. Þó það sé jákvætt að rofin
hafi verið eignatengsl á milli Mílu og Símans er ljóst að staða Símans, miðað við
markaðshlutdeild, hefur ekki breyst mikið yfir það heila á liðnum árum,
heildsöluviðskipti eru ennþá þó nokkur og yfirstandandi mál vegna kvartana yfir
háttsemi Símans styðja að hegðunarskilyrði gildi áfram. Nokkur ákvæði meðal annars um
eftirlitsnefnd með sáttinni og fleira sem ekki er talin þörf á að haldi gildi sínu eru
þó felld niður.

Samkeppniseftirlitið telur mikilvægt, áður en
tekin verður ákvörðun um frekari breytingar á sáttinni, að aukin reynsla fáist af
þeim breytingum sem urðu á fjarskiptamörkuðum við sölu Símans á Mílu til Ardian,
auk þess að leyst verði úr fyrirliggjandi kvörtunum og athugunum sem varða
Símann og til skoðunar eru, bæði hjá eftirlitinu og dómstólum.

Í ákvörðuninni sem birt er í dag er farið ítarlega yfir
þessa þætti auk þess sem skýrt er frekar hvaða ákvæði sáttarinnar frá 2015 hafa fallið úr gildi,
hver eru felld úr gildi með ákvörðuninni og hvaða ákvæði halda gildi sínu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.