Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið veitir Kviku banka heimild til að kaupa færsluhirðingarsamninga úr fórum sameinaðs félags Rapyd og Valitors gegn skilyrðum

10. júní 2022

Eins og fram kemur í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 14/2022, Kaup Kviku banka á færsluhirðingarsamningum af sameinuðu félagi Rapyd og Valitors, sem
birt er í dag, hefur Samkeppniseftirlitið lokið rannsókn sinni á kaupum Kviku
banka hf. („Kvika“) á færsluhirðingarsamningum úr fórum sameinaðs félags Rapyd
Financial Network (2016) Ltd. („Rapyd“) og Valitors hf.

Eins og fram kom í fréttatilkynningu Samkeppniseftirlitsins vegna samruna Rapyd og Valitors, hafði
Samkeppniseftirlitið þegar metið Kviku hæfan kaupanda að samningunum í
skilningi sáttar sem Rapyd gerði við Samkeppniseftirlitið í tengslum við
samruna Rapyd og Valitors. Með ákvörðun sinni nú heimilar Samkeppniseftirlitið
Kviku formlega að kaupa það tilgreinda magn færsluhirðingarsamninga sem kveðið
var á um að skyldi selt samkvæmt ákvörðun nr. 13/2022, Samruni Rapyd og
Valitors
, frá sameinuðu félagi Rapyd og Valitors, gegn skilyrðum sem Kvika
hefur fallist á að hlíta með undirritun aðgreindrar sáttar við
Samkeppniseftirlitið.

Fyrir liggur að Kvika mun tímabundið kaupa tiltekna
þjónustu frá sameinuðu félagi, einkum á sviði tæknilegrar framkvæmdar og
uppgjörs gagnvart alþjóðlegu kortafélögunum. Með sáttinni við
Samkeppniseftirlitið hefur Kvika m.a. skuldbundið sig til þess að færa
framangreind þjónustukaup til annars þjónustuveitanda sem ekki er umsvifamikill
færsluhirðir á íslandi fyrir tiltekin tímamörk. Er þetta mikilvægur liður í því
að tryggja varanlegt samkeppnislegt sjálfstæði Kviku frá sameinuðu félagi.
Jafnframt er m.a. að finna í sáttinni ákvæði sem lúta að því að tryggja að
færsluhirðingarþjónusta Kviku verði ekki rekin í dótturfélagi í eigu bankans
nema að tilteknum skilyrðum fullnægðum.

Telur Samkeppniseftirlitið ekki þörf á frekari íhlutun
vegna kaupa Kviku á umræddum færsluhirðingarsamningum en felast í ákvæðum
téðrar sáttar Kviku við Samkeppniseftirlitið og ákvæðum áðurnefndrar sáttar
Samkeppniseftirlitsins við Rapyd.

Þrátt fyrir að Samkeppniseftirlitið hafi fyrir sitt leyti
metið samruna Rapyd og Valitors ásættanlegan út frá samkeppnissjónarmiði í
ljósi þeirra skilyrða sem Rapyd féllst með gerð sáttar við
Samkeppniseftirlitið, þá skal á það minnt að Fjármálaeftirlit Seðlabanka
Íslands („Seðlabankinn“) hefur kaup Rapyd á Valitor ennþá til skoðunar og eru
kaupin háð því að Seðlabankinn veiti samþykki sitt fyrir þeim. Þar sem sala
færsluhirðingarsamninganna til Kviku byggja á því að af samruna Rapyd og
Valitors verði, eru kaup Kviku á þeim
einnig háð því að Seðlabankinn heimili Rapyd að kaupa Valitor.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.