Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samtök fjármálafyrirtækja gera sátt við Samkeppniseftirlitið, viðurkenna brot og greiða sektir

28. mars 2022

Með ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins, sem birt er í dag, er gerð grein fyrir sátt sem
eftirlitið hefur gert við Samtök fjármálafyrirtækja (SFF). Í sáttinni
viðurkenna SFF brot gegn samkeppnislögum og fyrirmælum sem hvíla á samtökunum á
grundvelli eldri ákvörðunar. Hafa SFF fallist á að greiða 20 milljónir kr. í sekt
og grípa til aðgerða sem vinna gegn því að brot endurtaki sig.

Upphaf þessa máls má rekja til opinberrar
umfjöllunar af hálfu SFF um verðlagningu tryggingafélaga í kjölfar gagnrýni
Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) á iðgjöld ökutækjatrygginga haustið
2021. Umfjöllun SFF leiddi til þess að FÍB sendi Samkeppniseftirlitinu kvörtun
14. september 2021 og óskaði eftir því að eftirlitið tæki til rannsóknar hvort
hagsmunagæsla SFF fyrir hönd aðildarfélaga sinna bryti gegn ákvæðum
samkeppnislaga.

Ákvæði 12. gr. samkeppnislaga
leggja bann við því að hagsmunasamtök fyrirtækja raski samkeppni í starfsemi
sinni. Samkvæmt ákvörðun samkeppnisráðs nr. 17/2004 er SFF „óheimilt að fara
með opinbert fyrirsvar varðandi verðlagningu og þjónustu aðildarfélaga sinna.
Tekur þetta m.a. til umræðu á opinberum vettvangi, um verð og verðbreytingar
aðildarfélaga og um kröfur viðskiptavina þeirra um lægra verð eða bætt
viðskiptakjör.
“

Eftir að rannsókn
Samkeppniseftirlitsins hófst sneri SFF sér til eftirlitsins og óskaði eftir
viðræðum um að ljúka málinu með sátt skv. samkeppnislögum. Sátt var undirrituð
21. mars 2022 og í henni viðurkennir SFF að hafa brotið gegn 12. gr.
samkeppnislaga og ákvörðun nr. 17/2004.

Fólust brot SFF í því að samtökin
tjáðu sig opinberlega um verðlagsmál aðildarfélaga sem starfa á
vátryggingarmarkaði og héldu uppi vörnum um verðlagsstefnu þeirra í kjölfar
gagnrýni FÍB. SFF fóru þannig með opinbert fyrirsvar varðandi verðlagningu og
þjónustu aðildarfyrirtækja sinna sem kom í veg fyrir að aðildarfyrirtækin tækju
hvert og eitt til varna um verðlagsstefnu sína með sjálfstæðum hætti. Fólust í
þessu samskipti á vettvangi SFF og greinarskrif samtakanna sem birtust
opinberlega, dags. 25. maí 2021 og 8. september 2021.

Að mati Samkeppniseftirlitsins voru
brot SFF þess eðlis að þau réttlæta að ákvarða sektir í máli þessu út frá
hámarkfjárhæð sektar á samtökin sjálf (10% af veltu samtakanna) sem nemur um 20
milljónum króna. Hins vegar horfði Samkeppniseftirlitið til þess að SFF óskuðu
að eigin frumkvæði eftir sáttarviðræðum, viðurkenndu brot greiðlega og féllust
á að grípa til aðgerða sem vinna gegn því að brot endurtaki sig. Með þessu hafa
SSF auðveldað og stytt rannsókn og málsmeðferðina sem hefur jákvæð
samkeppnisleg áhrif. Sökum þessa og eðli málsins var ákveðið að beita ekki þeim
ákvæðum samkeppnislaga sem heimila að leggja hærri sekt á hagsmunasamtök
fyrirtækja en sem nemur 10% af heildarveltu viðkomandi samtaka.

Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins: 

„Þátttaka hagsmunasamtaka í
opinberri umræðu um verðlagningu aðildarfyrirtækja sinna er sérstaklega
varhugaverð. Er mikilvægt að hagsmunasamtök fyrirtækja gæti í hvívetna að
fyrirmælum samkeppnislaga og komi ekki að umræðu um atriði sem varða verð á
vöru eða þjónustu aðildarfyrirtækja. Er þetta sérstaklega brýnt við þær
aðstæður sem nú ríkja
.“

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 7/2022 er
aðgengileg hér og sáttin hér.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.