Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Söguleg samrunaákvörðun framkvæmdastjórnarinnar

20. september 2022

Á dögunum ógilti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kaup
Illumina á Grail. Illumina er leiðandi líftæknifyrirtæki
á sviði meðal annars krabbameinsrannsókna, en Grail er sprotafyrirtæki sem
þróað hefur nýja tækni við skimun krabbameins. Bæði félög eru bandarísk.

Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar er söguleg fyrir margra
hluta sakir. Þannig er þetta í fyrsta skipti sem framkvæmdastjórn ESB ógildir
samruna sem ekki var tilkynningarskyldur, þar sem veltumörk slíkrar skyldu voru
ekki uppfyllt. Einnig varpar málið ljósi á þýðingu samkeppnisreglna þegar
sprota- og nýsköpunarfyrirtæki eiga í hlut, þar á meðal á heilbrigðissviði.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins: 

„Samkeppniseftirlitið
er virkur þátttakandi í þéttu samstarfi evrópskra samkeppniseftirlita. Í þessu
máli óskuðum við, ásamt nokkrum systureftirlitum, eftir því að framkvæmdastjórn
ESB rannsakaði samruna sem ekki var tilkynningarskyldur en gat þó haft skaðleg
áhrif á baráttuna gegn krabbameini, þar á meðal hér á landi. Niðurstaðan er sú
að ESB hefur ógilt yfirtöku stórs líftæknifyrirtækis á mikilvægu
sprotafyrirtæki og þar með skapað aðstæður fyrir hraða framþróun á sviði
krabbameinsskimana.“

Hærra verð, skert gæði og minni nýsköpun

Forsaga málsins er sú að í apríl á síðasta ári samþykkti
framkvæmdastjórn ESB beiðni Samkeppniseftirlitsins og fimm annarra
samkeppnisyfirvalda í Evrópu, um að taka samruna Illumina og Grail til
meðferðar. Þessar beiðnir voru sendar þrátt fyrir að samruninn sé ekki
tilkynningaskyldur í viðkomandi ríkjum þar sem veltuviðmið eru ekki uppfyllt.
Framkvæmdastjórnin samþykkti þessar beiðnir, og hóf rannsókn á samrunanum en það
var síðan í júlí á þessu ári sem Evrópudómstóllinn staðfesti lögmæti þessara
beiðna og rannsókn framkvæmdastjórnarinnar.

Ástæðan fyrir því að Samkeppniseftirlitið og önnur
samkeppnisyfirvöld, óskuðu eftir því við framkvæmdastjórn ESB að samruninn yrði
rannsakaður, er vegna þeirra mögulegu neikvæðu áhrifa sem samruni
líftæknifélaganna gæti haft og leitt meðal annars til hærra verðs, skertra
gæða, minni nýsköpunar á mikilvægum mörkuðum er snerta krabbameinsskimanir.

Niðurstaða framkvæmdastjórnar ESB frá því í síðustu viku er
sú að samruninn hefur neikvæð áhrif á samkeppni á markaði fyrir krabbameinsskimanir, en samkeppni á
honum er mikil og mun breyta hvernig skimað verður fyrir krabbameini til
framtíðar. Illumina býr yfir ákveðinni tækni sem gerir öðrum félögum, líkt og
Grail, ókleift að starfa án þess að vera í samstarfi við félagið. Með kaupum
Illumina á Grail, hefði fyrirtækið hafið beina samkeppni á sviði
krabbameinsskimunar, í stað þess að selja slíkum fyrirtækjum fyrst og fremst
nauðsynlega tækni. 

Framkvæmdu samrunann á meðan rannsókn stóð

Að mati framkvæmdastjórnarinnar kæmist Illumina í þá stöðu
að geta komið í veg fyrir að keppinautar Grail hefðu aðgang að nauðsynlegri
tækni til þess að geta þróað áfram sínar vörur. Því hafi samruninn meðal annars
neikvæð áhrif á nýsköpun á þessum mikilvæga markaði. Þá voru þau skilyrði sem
Illumina lagði til ekki nægjanleg til þess að vega upp á móti neikvæðum áhrifum
samrunans.

Þrátt fyrir að samþykki samkeppnisyfirvalda lægi ekki fyrir,
ákváðu félögin að framkvæma samrunann seint á síðasta ári. Hefur samruninn því
þegar átt sér stað, án leyfis samkeppnisyfirvalda, en samrunaaðilum er almennt
óheimilt að framkvæma samruna á meðan hann er til meðferðar hjá
samkeppnisyfirvöldum. Þarf því að vinda ofan af samrunanum, og tryggja
sjálfstæði Grail að nýju.

Þetta samrunamál er ágætis dæmi um hvernig
samkeppnisyfirvöld í Evrópu vinna náið saman, og að samrunar sem hafa áhrif hér
á landi geta komið til rannsóknar og skoðunar hjá framkvæmdastjórn ESB.

Tenglar á bakgrunnsupplýsingar:

  • Ræða Margrethe Vestager, varaforseta framkvæmdastjórnar ESB og formanns samkeppnisnefndar um ákvörðunina
  • Síða málsins á vefsíðu framkvæmdastjórnarinnar og lýsing á samruna
  • Fréttatilkynning Illumina vegna ákvörðunarinnar
  • Frétt SE frá apríl 2021 um samþykki framkvæmdastjórnarinnar á beiðni um rannsókn
  • Frétt SE frá ágúst 2021 um rannsókn framkvæmdastjórnarinnar

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið skilar umsögn um frumvarp um lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti

  • 16. apríl 2026
  • Fréttir

Samkeppnismat lykilatriði til að efla samkeppnishæfni

  • 10. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.