Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Vegna mögulegrar sölu verslana á Suðurlandi

18. febrúar 2020
snowcap mountain

Í Morgunblaðinu í dag er að finna umfjöllun um tilraunir Festi, móðurfélags Krónunnar, til sölu á verslun Krónunnar á Hvolsvelli annars vegar og versluninni Kjarval á Hellu hins vegar. Eins og fram kemur í fréttinni má rekja umræddar sölutilraunir til skilyrða sem Festi lagði fram í sátt við Samkeppniseftirlitið árið 2018 vegna samruna N1 og Festi. Í ljósi þessarar umræðu telur Samkeppniseftirlitið rétt að upplýsa um eftirfarandi:

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á samruna N1 og Festi leiddi m.a. í ljós að verslanir Festi, Krónan á Hvolsvelli og Kjarval á Hellu, og N1 á Hvolsvelli yrðu nánast með einokunarstöðu í sölu dagvara á Hellu og Hvolsvelli eftir samrunann. Til þess að kanna það samkeppnislega aðhald sem aðrar verslanir, s.s. í næstu bæjarfélögum, myndu veita hinu sameinaða fyrirtæki var framkvæmd neytendakönnun á meðal viðskiptavina samrunaaðila á Hellu og Hvolsvelli. Niðurstöður hennar bentu til þess að samrunaaðilar væru nánir keppinautar á þessu svæði og myndu búa við takmarkað samkeppnislegt aðhald á svæðinu eftir samrunann. Sú röskun á samkeppni sem af samrunanum leiddi fælist einkum í breyttum hvötum samrunaaðila í kjölfar samrunans á svæðinu, s.s. til þess að keppa í verði, vöruframboði, opnunartíma og annarri þjónustu við viðskiptavini.

Til þess að bregðast við framangreindu lögðu samrunaaðilar (nú Festi) að eigin frumkvæði fram tillögur að skilyrðum til að leysa framangreind samkeppnisleg vandamál sem ella hefðu leitt af samrunanum. Fólu þessar tillögur Festi í sér sölu verslunar Kjarvals á Hellu. Þar sem vafi lék á söluhæfi verslunarinnar á Hellu var jafnframt mælt fyrir um það í sáttinni að ef ekki tækist að selja verslunina á Hellu bæri Festi að selja aðrar eignir félagsins á þessu svæði á grundvelli sömu skilmála. Slíkt skilyrði er þekkt leið í samkeppnisrétti til þess að bregðast við óvissu um möguleika á sölu framboðinna eigna. Var það mat Samkeppniseftirlitsins að framboðin skilyrði Festi fælu í sér mótvægi við þau skaðlegu áhrif á samkeppni sem samruninn hefði annars í för með sér fyrir íbúa og aðra neytendur á svæðinu.

Þess ber að geta að í viðræðum við Samkeppniseftirlitið ábyrgðist Festi að gengið hefði verið úr skugga um heimild til framsals allra réttinda er tengdust sölu eignanna. Eins og fram kemur í frétt Morgunblaðsins virðist annað hins vegar komið á daginn, þ.e. varðandi verslun Krónunnar á Hvolsvelli.

Í ljósi framangreinds hefur Samkeppniseftirlitið nú til skoðunar, í ljósi þróunar málsins og annarra aðstæðna, hvernig unnt er tryggja að markmið sáttarinnar um m.a. að vernda samkeppnishagsmuni neytenda á Hellu og Hvolsvelli nái fram að ganga. Er það gert á grundvelli þess fyrirkomulags og málsmeðferðar sem sáttin og samkeppnislög kveða á um.

 

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið skilar umsögn um frumvarp um lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti

  • 16. apríl 2026
  • Fréttir

Samkeppnismat lykilatriði til að efla samkeppnishæfni

  • 10. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.