Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Verðhækkanir og samkeppni – upplýsingasíða kynnt

2. febrúar 2023

Hækkandi verðlag er til þess
fallið að draga úr kaupmætti, skerða lífsgæði almennings og raska efnahagslegum
forsendum í rekstri heimila og fyrirtækja. Við þær aðstæður sem nú eru ríkjandi
er því mikilvægt að hafa vakandi auga með hvers konar samkeppnishindrunum. Stjórnvöld
víða um heim eru nú að huga að þessu.

Upplýsingasíða –
framlegðargreining

Með þetta í huga opnaði
Samkeppniseftirlitið upplýsingasíðu
þann 22. desember síðastliðinn. Þar er haldið utan um upplýsingar, aðgerðir og
sjónarmið sem tengjast verðhækkunum og samkeppnishindrunum sem kunna að koma í
ljós við ríkjandi efnahagsaðstæður.

Á upplýsingasíðunni er meðal annars að
finna umræðuskjal
nr. 3/2022, Þróun framlegðar á lykilmörkuðum
, þ.e. dagvöru,
eldsneyti og byggingavöru. Tekur greiningin til ársins 2017 og fram á árið
2022.

Samkeppniseftirlitið er nú að
afla sjónarmiða hagsmunaaðila um verðhækkanir, þar á meðal um þróun framlegðar og
atriði sem henni tengjast. Jafnframt er leitað sjónarmiða um þróun verðlags og
samkeppnisaðstæðna á síðustu vikum og horfur á næstu vikum og mánuðum.

Fundur með
menningar- og viðskiptaráðherra

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar-
og viðskiptaráðherra hefur beitt sér í opinberri umræðu um þessi mál að
undanförnu. Þar á meðal hefur hún tekið þátt í opnum umræðufundum á vettvangi
samkeppnisyfirvalda, um samspil
samkeppni og verðbólgu
og áhrif
samkeppni á hagvöxt og launakjör
.

Á fundi í dag var upplýsingasíðan
kynnt sérstaklega fyrir ráðherra. Jafnframt var vinna eftirlitsins kynnt frekar
og áherslur á þessu sviði ræddar.

,,Eitt áhrifaríkasta verkfærið
í samkeppnis- og neytendamálum er skilvirk upplýsingamiðlun til almennings. Að
undanförnu hafa margar þjóðir verið að ganga í gegnum sérstakt árferði í
efnahagsmálum þar sem verðlag hefur meðal annars farið hækkandi á ýmsum vörum
og þjónustu. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að allir leggist á árarnar til að
halda aftur af verðbólgu til að verja þá kaupmáttaraukningu sem hefur áunnist á
undanförnum árum. Ný upplýsingasíða Samkeppniseftirlitsins er varða á þeirri
vegferð sem skiptir máli fyrir aðhald í samkeppnis- og neytendamálum,‘‘

sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

„Virk samkeppni knýr fyrirtæki
til að hagræða og bjóða eins hagkvæmt verð og unnt er á hverjum tíma.
Samkeppnislegt aðhald vinnur þannig gegn því að fyrirtæki velti
kostnaðarhækkunum yfir á viðskiptavini. Það er því brýnt verkefni fyrir
samfélagið allt að verja og efla samkeppni, ekki síst á mörkuðum sem miklu
skipta fyrir lífskjör almennings
“, sagði Páll Gunnar Pálsson forstjóri
Samkeppniseftirlitsins.

Bakgrunnsupplýsingar:

Samkeppnishindranir sem birst
geta í verðhækkunum geta verið af ýmsum
toga. Þær geta falist í háttsemi fyrirtækja, skipulagi markaða eða þeirri
umgjörð sem stjórnvöld búa mörkuðum. Sem óháð stjórnvald á þessu sviði er það
hlutverk Samkeppniseftirlitsins að grípa til íhlutunar þegar þörf er á eða
beint tilmælum til fyrirtækja og stjórnvalda vegna mögulegra
samkeppnishindrana. Jafnframt er mikilvægt að stjórnvöld og fyrirtæki á ólíkum
sviðum hugi að því hvernig unnt er að draga úr samkeppnishindrunum við ríkjandi
aðstæður.

Eins og rakið er í fréttinni er Samkeppniseftirlitið að afla
sjónarmiða hagsmunaaðila um verðhækkanir, til að mynda um framlegðargreininguna
og atriði sem henni tengjast. Þar á meðal er óskað sjónarmiða um eftirfarandi:

  1. Ábendingum og sjónarmiðum um samkeppnishindranir
    fyrirtækja á mikilvægum mörkuðum íslensks atvinnulífs, sem kunna að hafa birst
    í hækkun verðs á vöru eða þjónustu á síðustu mánuðum.
  2. Sjónarmiðum og upplýsingum frá hlutaðeigandi
    fyrirtækjum á dagvöru-, eldsneytis- og byggingavörumörkuðum sem varpa frekara
    ljósi á þróun framlegðar og framlegðarhlutfalla á þessum mörkuðum sem lýst er í
    umræðuskjalinu.
  3. Sjónarmiðum og upplýsingum frá málsvörum
    neytenda á dagvöru-, eldsneytis- og byggingavörumörkuðum í tilefni af greiningu
    á þróun framlegðar og framlegðarhlutfalla á viðkomandi mörkuðum sem lýst er í umræðuskjalinu.
  4. Sjónarmiðum og ábendingum um stöðu samkeppni á
    banka- og vátryggingamörkuðum sem m.a. geta komið að gagni við athuganir og
    forgangsröðun athugana og annarra verkefna í eftirliti með samkeppni á þessu
    sviði.
  5. Sjónarmiðum og upplýsingum frá stjórnendum
    fyrirtækja á lykilmörkuðum um það hvaða áhrif samkeppnislegt aðhald á
    viðkomandi markaði hefur á stefnumörkun og ákvarðanir um arðgreiðslur til
    hluthafa.
  6. Upplýsingum og sjónarmiðum frá eigendum fyrirtækja
    á lykilmörkuðum sem eiga veigamikinn eignarhlut í fleiri en einu fyrirtæki á
    sama markaði, um það hvernig eigendaaðhald af þeirra hálfu styður við samkeppni
    og vinnur gegn verðhækkunum.
  7. Ábendingum og sjónarmiðum um samkeppnishindranir
    af hálfu stjórnvalda, s.s. í lögum eða reglum, sem brýnt er að taka til
    umfjöllunar í tilefni af hækkun verðs og vöru eða þjónustu á síðustu mánuðum.
  8. Sjónarmiðum um áherslur og forgangsröðun í
    verkefnum Samkeppniseftirlitsins á næstu misserum, vegna þeirra efnahagsaðstæðna
    sem nú ríkja.
  9. Sjónarmiðum um þróun verðlags og
    samkeppnisaðstæðna á síðustu vikum og mánuðum, þ.e. um mögulegar breytingar sem
    orðið hafa á verðlagningu og ástæðum þess.
  10. Sjónarmiðum um horfur á næstum vikum og mánuðum,
    að því er varðar þróun verðlags á lykilmörkuðum.

Frestur
til að skila inn sjónarmiðum í gegnum netfangið
samkeppni@samkeppni.is
rennur út 14. febrúar næstkomandi.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.