22.1.2009

Fréttatilkynning - Samkeppniseftirlitið gerir húsleit hjá Fóðurblöndunni og MR

fodblandan_og_MRÍ tilefni af fjölmiðlaumfjöllun um aðgerðir Samkeppniseftirlitsins í dag er rétt að taka eftirfarandi fram:

Samkeppniseftirlitið hefur í dag framkvæmt húsleitir á skrifstofum Fóðurblöndunnar hf. og Mjólkurfélags Reykjavíkur hf. Til húsleitanna var aflað úrskurða frá Héraðsdómi Reykjavíkur.

Húsleitirnar eru liður í rannsókn Samkeppniseftirlitsins á ætluðum brotum þessara fyrirtækja á samkeppnislögum. Einkum lýtur rannsóknin að hugsanlegu verðsamráði þessara fyrirtækja á fóðurmarkaði, þ.e. á markaði fyrir framleiðslu og sölu á jórturdýra-, svína- og alifuglafóðri. Einnig er háttsemi á áburðarmarkaði til skoðunar.

Rannsóknin er grundvölluð á upplýsingum og gögnum sem Samkeppniseftirlitið hefur aflað. Samkeppniseftirlitið mun flýta rannsókninni eftir því sem kostur er. Á þessu stigi gefur Samkeppniseftirlitið ekki frekari upplýsingar um rannsóknina.