Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Fulltrúum Teymis vikið úr stjórn Tals og ákvæði í samningi Tals og Vodafone lýst ógild

26. janúar 2009
snowcap mountain

tal_teymi_vodafoneMeð bráðabirgðaákvörðun í dag hefur Samkeppniseftirlitið mælt fyrir um að fulltrúar Teymis hf. í stjórn IP-fjarskipta hf. (Tali) víki og í stað þeirra skuli skipaðir tveir óháðir einstaklingar sem tilnefndir verða af Samkeppniseftirlitinu. Þá eru tiltekin ákvæði í samningi Tals og Vodafone um aðgang Tals að farsímaneti Vodafone lýst ógild á þeim grundvelli að þau séu andstæð ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008 Samruni Teymis hf. og IP-fjarskipta ehf. og ákvæði 10. gr. samkeppnislaga.

Samkeppniseftirlitið kemst í bráðabirgðaákvörðun sinni að þeirri niðurstöðu að Teymi, Vodafone og Tal hafi sennilega brotið gegn ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008 og ákvæði 10. gr. samkeppnislaga með því að hafa komist að samkomulagi um að Tal ætti að beina sjónum sínum að yngri markhópum og stunda ekki samkeppni gagnvart Vodafone. Þá kemst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að sennilegt sé að tiltekin ákvæði í sýndarnetssamningi Tals og Vodafone um aðgang Tals að farsímaneti Vodafone séu til að tryggja hagsmuni Vodafone og Teymis sem sé andstætt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008. Telur Samkeppniseftirlitið að samningurinn geti dregið úr þeirri samkeppni sem Tal getur stundað á markaðnum og þar með fari þau í bága við ákvæði 10. gr. samkeppnislaga.

Samkeppniseftirlitið telur sennilegt að fulltrúar Teymis hafi beitt sér gegn samkeppnislegu sjálfstæði Tals og því sé nauðsynlegt að gera breytingar á stjórn Tals. Ella sé hætta á því að Teymi og Vodafone geti veikt Tal varanlega sem keppinaut á markaði.

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til bráðabirgða gildir til 1. september 2009.

Bakgrunnsupplýsingar
Samkeppniseftirlitið gerði húsleit á starfstöðvum Teymis, Vodafone og Tals þann 7. janúar sl. Hafði Samkeppniseftirlitið aflað sér húsleitarheimildar í samræmi við lög og lagt var hald á gögn frá viðkomandi fyrirtækjum. Þá barst Samkeppniseftirlitinu þann 7. janúar sl. erindi frá Símanum þar sem krafist var bráðabirgðaákvörðunar m.a. vegna samnings Tals og Vodafone um aðgang Tals að farsímaneti Vodafone. Samkeppniseftirlitið tilkynnti aðilum þann 9. janúar sl. að stofnunin teldi vera fyrir hendi vísbendingar um að bið eftir endanlegri niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins gæti haft í för með sér alvarlegan og óafturkræfan skaða á samkeppni. Var hlutaðeigandi fyrirtækjum veittur kostur á að tjá sig um frummat Samkeppniseftirlitsins sem og erindi Símans.

Í ákvæði 3. mgr. 16. gr. samkeppnislaga kemur fram að Samkeppniseftirlitinu sé heimilt að taka ákvarðanir til bráðabirgða um einstök mál ef:

…sennilegt þykir að sú háttsemi eða þær aðstæður sem til athugunar eru fari gegn ákvæðum samkeppnislaga eða ákvörðunum teknum á grundvelli þeirra …

Einnig er það skilyrði að málið þoli ekki bið.

Ákvörðun nr. 1/2009.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.