2.2.2010

Héraðsdómur telur að Icelandair hafi brotið gegn samkeppnislögum en fellir niður sektir

heradsdomur_reykjavik_logo_549331046Í júní 2007 staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 11/2007 þess efnis að með kynningu og sölu á flugfargjöldum, svokölluðum Netsmellum að upphæð 16.900 kr., sem stóðu viðskiptavinum Icelandair ehf., til boða á árinu 2004 á flugleiðinni milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar annars vegar og á flugleiðinni milli Keflavíkur og London hins vegar, hafi félagið misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið gegn samkeppnislögum. Var Icelandair gert að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 130 milljónir króna í ríkissjóð. Icelandair skaut úrskurði áfrýjunarnefndar til dómstóla.

Með dómi sínum í dag hefur héraðsdómur Reykjavíkur staðfest þá niðurstöðu áfrýjunarnefndar að Icelandair hafi verið markaðsráðandi stöðu og misnotað hana og þar með brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga. Héraðsdómur taldi hins vegar brotin ekki eins alvarleg og lagt var til grundvallar í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála og felldi úr gildi sektarákvörðun áfrýjunarnefndar.

Samkeppniseftirlitið hefur til skoðunar hvort rétt sé að áfrýja þessum dómi héraðsdóms til Hæstaréttar.

Sjá dóm Héraðsdóms.