Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið heimilar samruna Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH afurða með skilyrðum

13. apríl 2021
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið hefur í dag heimilað samruna kjötafurðastöðvanna Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH afurða með skilyrðum. Samrunaaðilar brugðust við mati eftirlitsins á skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni með því að setja fram tillögur að skilyrðum sem væru til þess fallnar að mæta áhyggjum Samkeppniseftirlitsins af skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni, en gerðu um leið samrunaaðilum kleift að framkvæma samrunann og ná markmiðum hans.

Með skilyrðunum, sem felast í sátt samrunaaðila og Samkeppniseftirlitsins, skuldbinda aðilar sig til að grípa til eftirfarandi aðgerða:

Aðgerðir til að efla og tryggja samningsstöðu bænda

Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að standa ekki í vegi fyrir því að bændur færi viðskipti sín frá sameinuðu félagi til keppinauta þess. Jafnframt er tryggður réttur bænda til að semja um afmarkaða þjónustu við sameinað fyrirtæki, s.s. slátrun, en aðra þjónustu við þriðju aðila, s.s. vinnslu.

Aðgerðir er varða verðlagningu einstakra þjónustuþátta

Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til þess að aðgreina í bókhaldi sínu slátrun og vinnslu og lúta skorðum og reglum við verðlagningu á slátrun og annarri nánar skilgreindri þjónustu og í tiltekinn tíma. Þannig njóti bændur hagræðis sem sameinað fyrirtæki ætlar að ná og þurfi ekki að sæta verðhækkunum sem óhjákvæmilega geta leitt af samkeppnishamlandi samrunum. Skilyrðin eru jafnframt til þess fallin að styðja við samningsforræði bænda og þar með styrkja það aðhald sem þeir geta beitt gagnvart kjötafurðastöðvum.

Aðgerðir sem rjúfa eignatengsl við minni kjörafurðastöðvar með sölu á eignarhlut til bænda

Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að selja eignarhluti sína í Fjallalambi annars vegar og Sláturfélagi Vopnfirðinga hins vegar. Skulu hlutirnir seldir til bænda, eða félaga í meirihlutaeigu bænda. Er sölunni settur tiltekinn frestur, sem háður er trúnaði.

Aðgerðir til að koma í veg fyrir fækkun keppinauta og viðsemjenda bænda

Kjarnafæði hefur átt í viðskiptum við kjötafurðastöðvarnar B. Jensen og Sláturfélag Vopnfirðinga. Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að eiga í áframhaldandi viðskiptum í tiltekinn tíma við B. Jensen og Sláturfélag Vopnfirðinga. Þessi viðskipti eru mikilvæg fyrir áframhaldandi rekstur þessara fyrirtækja, sem ella kynnu að hverfa af markaði. Miðar framangreind skuldbinding að því að fyrirtækin hafi ráðrúm til að bregðast við breyttum markaðsaðstæðum og starfa áfram sem sjálfstæðir keppinautar.

Aðgerðir til að stuðla að samkeppnislegu sjálfstæði sameinaðs fyrirtækis

Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að setja sér setja sér samkeppnisstefnu, grípa til aðgerða til að tryggja eftirfylgni við sáttina í daglegri starfsemi, tryggja óhæði gagnvart keppinautum á vettvangi stjórnar og lykilstarfsmanna og halda skrá yfir öll samskipti við keppinauta. Eru þessar aðgerðir til þess fallnar að stuðla að því að sameinað fyrirtæki virði bannreglur samkeppnislaga og sporna við tjóni sem leitt getur af aukinni samþjöppun í greininni.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins:

„Það er hagur íslenskra neytenda og bænda að virk samkeppni ríki á mörkuðum fyrir slátrun gripa og í heildsölu og vinnslu kjötafurða. Kannanir á meðal bænda gefa til kynna víðtækan stuðning við aðgerðir til þess að standa vörð um samkeppni á þessu sviði.

Það er mat Samkeppniseftirlitsins að sátt þess við samrunaaðila verji hagsmuni bænda og neytenda og geri sameinuðu fyrirtæki jafnframt kleift að eflast og dafna á grunni virkrar samkeppni og aðhalds af hendi bænda.“

Samkeppnishindranir

Framangreindum aðgerðum er ætlað að vega upp á móti skaðlegum áhrifum sem Samkeppniseftirlitið telur að samruninn hefði ella haft. Er það niðurstaða rannsóknarinnar að án framangreindra skilyrða gæti samruninn haft eftirfarandi skaðleg áhrif:

  1. Samkeppnisraskanir vegna aukinnar samþjöppunar, til tjóns fyrir neytendur og bændur.
  2. Hindranir fyrir minni keppinauta í slátrun og vinnslu og að samruninn kynni að leiða til þess að minni keppinautar hverfi af markaðnum.
  3. Bændum væri ekki tryggð hlutdeild í ábata af þeirri hagræðingu sem sameinað fyrirtæki hyggst ná, þar sem þeim muni ekki gefast færi á að sýna sameinuðu fyrirtæki nægilegt aðhald. Þá vinni samkeppnishindranir sem af samrunanum leiða gegn því að ábati hagræðingar skili sér til neytenda.
  4. Valkostum bænda fækki og þar með muni samningsstaða þeirra versna.

Nánar um sáttina og ákvörðun Samkeppniseftirlitsins

  • Ákvörðun nr. 12/2021 – Sátt samrunaaðila við Samkeppniseftirlitið er birt í ákvörðunarorði.
  • Fylgiskjal I – Rannsókn málsins, skilgreining markaða og mat á áhrifum samrunans
  • Fylgiskjal II – Niðurstöður fyrri bændakönnunar, dags. 10. desember 2020 til 6. janúar 2021 
  • Fylgiskjal III – Niðurstöður neytendakönnunar, dags. 11. til 22. desember 2020
  • Fylgiskjal IV – Niðurstöður síðari bændakönnunar, dags. 19. til 29. mars 2021

Bakgrunnsupplýsingar

Rannsókn málsins

Rannsókn málsins sætti lögbundnum tímatakmörkunum samrunareglna samkeppnislaga. Undir meðferð málsins aflaði Samkeppniseftirlitið umfangsmikilla gagna frá samrunaaðilum, keppinautum, viðskiptavinum, hagsmunasamtökum og öðrum hagaðilum með tölvupóstum, símtölum og fundum. Þá fékk Samkeppniseftirlitið markaðsrannsóknarfyrirtækið Zenter til að framkvæma könnun meðal neytenda og tvær kannanir meðal bænda.

Samrunaaðilar

Í samrunaskrá kemur fram að Norðlenska sé framleiðslufyrirtæki á sviði kjötvöru og sé með starfsstöðvar á Akureyri, Húsavík og í Reykjavík. Norðlenska slátri hrossum, nautgripum og svínum á Akureyri og sauðfé á Húsavík. Þá framleiði Norðlenska og selji ýmsar vörur úr lamba-, nauta-, grísa- og hrossakjöti undir vörumerkjunum Goði, KEA, Húsavíkurkjöt og Bautabúrið. Norðlenska er að fullu í eigu Búsældar ehf. sem er í dreifðu eignarhaldi 485 bænda.

Kjarnafæði er matvælavinnslufyrirtæki sem framleiðir og selur ýmsar vörur úr lamba-, nauta-, grísa- og hrossakjöti. Starfsemi félagsins fer fram á Svalbarðseyri. Kjarnafæði er til jafns í eigu Eiðs Gunnlaugssonar og Hreins Gunnlaugssonar. Kjarnafæði á að fullu félagið GMS ehf. sem framleiðir tilbúna rétti fyrir Kjarnafæði. Einnig á Kjarnafæði 34,78% eignarhlut í keppinautnum Sláturfélagi Vopnfirðinga hf.

Systurfélög Kjarnafæðis (í eigu sömu aðila) eru félagið Miðpunktur ehf. og Tani ehf. Fyrrnefnda félagið á ýmsar fasteignir á Akureyri, þ.á m. þá fasteign sem hýsir höfuðstöðvar Norðlenska á Akureyri. Tani ehf. á að fullu SAH afurðir ehf.

SAH rekur sláturhús og afurðasölu á Blönduósi. Starfsemi félagsins felst í slátrun á hrossum, nautgripum og sauðfé, og sölu á afurðum til matvælavinnslufyrirtækja. SAH afurðir eiga 3,9% eignarhlut í keppinautnum Fjallalambi hf. 

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
SKE eldsneytismarkaður

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.