Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Fréttatilkynning – Teymi og Og fjarskipti játa brot á samkeppnislögum

2. júlí 2009
snowcap mountain

tal_teymi_vodafoneMeð ákvörðun í dag lýkur athugun Samkeppniseftirlitsins sem hófst með húsleit á starfstöðvum Teymis, Og-fjarskipta og Tals þann 7. janúar sl. Í ákvörðuninni er komist að þeirri niðurstöðu að Teymi og Og-fjarskipti hafi brotið gegn 10. gr. samkeppnislaga og skilyrðum ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008 með eftirfarandi aðgerðum á árinu 2008:

  • Samstilltum aðgerðum og samkomulagi við IP fjarskipti ehf. (Tal) sem miðaði að því að draga úr samkeppnislegu sjálfstæði Tals og vinna gegn því að Tal keppti við Og fjarskipti.
  • Með tilteknum ákvæðum í samningi Tals við Og fjarskipti um aðgang að farsímaneti, dags. 11. apríl 2008. Ákvæði þessi voru til þess fallin að draga úr samkeppni á markaði.

Samkvæmt ákvörðuninni greiðir Teymi 70 m.kr. í stjórnvaldssekt vegna brotanna. Jafnframt er mælt fyrir um að Teymi selji frá sér eignarhlut sinn í Tali innan tiltekinna tímamarka. Á meðan á sölumeðferð stendur er mælt fyrir um aðgerðir til að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Tals gagnvart Og-fjarskipti

Undir rekstri málsins snéru forsvarsmenn Teymis sér til Samkeppniseftirlitsins og óskuðu eftir viðræðum um sátt vegna málsins. Undirgengust Teymi og Og-fjarskipti sátt sem liggur tilgrundvallar fyrrgreindri ákvörðun. Við mat á sektarfjárhæð er m.a. horft til þess að umrædd fyrirtæki höfðu frumkvæði að sáttarviðræðum við Samkeppniseftirlitið og hafa nú undanbragðalaust játað brot sín á samkeppnislögum. Einnig hefur verið fallist á að hlíta fyrirmælum sem til þess eru fallin að efla samkeppni. Hefur þetta auðveldað og stytt mjög rannsókn og málsmeðferð samkeppnisyfirvalda sem hefur jákvæð samkeppnisleg áhrif. Er horft til þessa samstarfsvilja við mat á sektum.

Í byrjun desember 2008 sneru fyrirsvarsmenn Tals sér til Samkeppniseftirlitsins og óskuðu eftir því að veita upplýsingar um framangreind brot. Var í því sambandi vísað til reglna Samkeppniseftirlitsins nr. 890/2005 um atvik sem leiða til niðurfellingar sekta eða ákvarðana um að lækka sektir í málum er varða ólögmætt samráð fyrirtækja. Var Tal fyrsta fyrirtækið í máli þessu til þess að veita upplýsingar um umrædd brot og hefur veitt mikilsverða aðstoð við að upplýsa málið. Sökum þessa var Tal ekki gerð sekt í málinu. 

Bakgrunnsupplýsingar:
Þann 13. júní 2008 tók Samkeppniseftirlitið ákvörðun í máli sem varðaði samruna fjarskiptafyrirtækjana Hive og Sko, sem nú starfa undir merkjum Tals (ákvörðun nr. 36/2008). Samruninn var heimilaður með skilyrðum. Þau skilyrði miðuðu að því að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Tals og að full og óskoruð samkeppni ríki á milli m.a. Tals og Og fjarskipta, sem er í eigu Teymis.

Samkeppniseftirlitið gerði húsleit á starfstöðvum Teymis, Og fjarskipta og Tals þann 7. janúar sl. Þann 26. janúar 2009 tók eftirlitið ákvörðun til bráðabirgða, nr. 1/2008, í því skyni að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Tals gagnvart Vodafone, á meðan á rannsókn stæði. Var mælt fyrir um breytingar á stjórnarskipan hjá Tali, auk þess sem tiltekin ákvæði í samningi Tals og Vodafone voru ógilt. Með ákvörðun nr. 8/2009, frá 27. febrúar sl., var að nýju mælt fyrir um aðgerðir til að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Tals.

Sjá nánar ákvörðun nr. 27/2009.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.