Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum vegna samrunatilkynningar Ardian og Mílu

10. febrúar 2022

Samkeppniseftirlitinu hefur borist fullnægjandi tilkynning vegna samruna franska sjóðastýringafélagsins Ardian France SA
(„Ardian“) og Mílu ehf. („Mílu“). Með viðskiptunum kaupir eignarhaldsfélag í
eigu Ardian og fjárfestingasjóða þess allt hlutafé Mílu af Símanum hf.

Samkeppniseftirlitið kallaði eftir samrunatilkynningu vegna
samrunans 19. nóvember 2021. Samruninn reyndist vera tilkynningarskyldur
og barst samrunatilkynning frá aðilum þann 19. janúar síðastliðinn. Í
kjölfarið fór fram skoðun á tilkynningunni og mat á því hvort að hún innihéldi
allar nauðsynlegar upplýsingar eins og reglur kveða á um. Átti
Samkeppniseftirlitið í samskiptum við fyrirtækin vegna þessa og fékk frá þeim
frekari nauðsynlegar upplýsingar.

Tilkynningin var metin fullnægjandi 8. febrúar og því byrjuðu tímafrestir að telja frá deginum í gær. Á sérstakri síðu um stöðu samrunamála
má lesa nánar um tímafresti í samrunamálum auk þess sem þar má finna stöðu
þeirra mála sem eru til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu.

Samkeppniseftirlitið hefur
það hlutverk samkvæmt
samkeppnislögum að leggja
mat á það
hvort samruni fyrirtækja raski
samkeppni og skaði
þar með hagsmuni
almennings. Liður í
slíkri rannsókn er
að afla sjónarmiða fyrirtækja sem
eftir atvikum eru keppinautar eða viðskiptavinir samrunaaðila.

Hér má nálgast samrunatilkynningu Ardian og Mílu án trúnaðarupplýsinga.

Samkeppniseftirlitið
býður öllum hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum að senda inn umsögn um samrunann
og möguleg áhrif hans, sér í lagi um það hvaða áhrif umsagnaraðili telur að
sala Mílu hafi á samkeppni, um markaðsskilgreiningar, lóðrétt tengsl Símans og
Mílu vegna langtíma heildsölusamnings eftir samrunann og fleira.

Vegna
lögbundinna tímafresta sem hvíla á Samkeppniseftirlitinu við meðferð
samrunamála er þess óskað að sjónarmið berist á netfangið samkeppni@samkeppni.is eigi
síðar en mánudaginn 21. febrúar.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
SKE eldsneytismarkaður

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Eldsneytismarkaður-4

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.