Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Yfirtaka Fiskvals hf. á rekstri Ný-Fisks ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 01/2014
  • Dagsetning: 29/1/2014
  • Fyrirtæki:
    • Fiskval hf.
    • Ný-Fiskur ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Sjávarútvegur og fiskvinnsla
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til skoðunar yfirtöku Fiskvals hf. á rekstri Ný-Fisks ehf. Fiskval stundar fyrst og fremst flatfiskvinnslu í Reykjanesbæ og er dótturfélag Icelandic Group hf. Icelandic Group er alþjóðlegt fyrirtæki sem framleiðir og selur ferskt, kælt og fryst sjávarfang á alþjóðamarkaði. Ný-Fiskur vinnur aðallega afurðir úr þorski en einnig ýsu, steinbít og karfa. Dótturfélag Ný-Fisks er Útgerðarfélag Sandgerðis ehf. en í samrunatilkynningunni kemur fram að hlutir Ný-Fisks í ÚS fylgdu ekki með í þessum kaupum og því væri útgerðarfélagið ekki hluti þess sem færðist yfir til Fiskvals. Samkeppniseftirlitið telur að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna þessa samruna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.