Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Barone I ehf. á 90% hlut í Löðri ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 6/2019
  • Dagsetning: 27/3/2019
  • Fyrirtæki:
    • Barone I ehf.
    • Löður ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Barone I ehf. á 90% hlut í Löðri ehf. Barone I ehf. er eignarhaldsfélag og er Löður ehf. einkahlutafélag sem sérhæfir sig í bílaþvotti, smurþjónustu og annarri skyldri þjónustu við bílaeigendur.

    Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki til myndunar markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005.