Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Lyfsalans ehf. á Lyfjavali ehf. og Landakoti fasteignafélagi

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 34/2021
  • Dagsetning: 7/9/2021
  • Fyrirtæki:
    • Lyfsalinn ehf.
    • Lyfjaval ehf.
    • Landakot fasteignafélag
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Lyf, stoðtæki (t.d. gleraugu) og tengdar vörur
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Með ákvörðuninni var tekin afstaða til kaupa Lyfsalans ehf. á Lyfjavali ehf. og Landakoti fasteignafélagi. Lyfsalinn rekur þrjú apótek, öll á höfuðborgarsvæðinu, Lyfjaval rekur þrjú apótek, tvö á höfuðborgarsvæðinu og eitt í Reykjanesbæ og Landakot er eigandi fasteignarinnar í Reykjanesbæ og hefur leigt það húsnæði til Lyfjavals, þar sem félagið starfrækir apótek. Eftir rannsókn á samrunanum varð það mat Samkeppniseftirlitsins að ekki væri tilefni til íhlutunar vegna samrunans þar sem ekki væru vísbendingar um að markaðsráðandi staða væri að myndast eða að samruninn leiddi að öðru leyti til umtalsverðrar röskunar á samkeppni.