14.3.2011

Frekari aðgerðir á meintu ólögmætu samráði Byko og Húsasmiðjunnar

Mynd: Samsett mynd af merki Samkeppniseftirlitsins og skjaldamerki ÍslandsEfnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur í dag, vegna rannsóknar á meintu ólögmætu samráði Byko og Húsasmiðjunnar hf., handtekið og fært til frekari yfirheyrslu fimmtán stjórnendur og starfsmenn fyrirtækjanna og þá hefur einn starfsmaður verið boðaður til frekari yfirheyrslu.

Aðgerðirnar nú eru framhald af húsleit í húsnæði Byko hf., Húsasmiðjunnar hf. og Úlfsins, sem fram fóru þann 8. mars sl. og yfirheyrslna í kjölfarið.

Til rannsóknar eru ætluð brot á banni samkeppnislaga við samráði keppinauta um m.a. verð, gerð tilboða og skiptingu markaða. Rannsókn efnahagsbrotadeildar beinist að ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna og grundvallast á kæru Samkeppniseftirlitsins, en þau brot sæta rannsókn lögreglu að undangenginni kæru stofnunarinnar. Samhliða rannsókn lögreglu á ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna hefur Samkeppniseftirlitið til rannsóknar hugsanleg brot hlutaðeigandi fyrirtækja á banni við ólögmætu samráði, en slík brot varða fyrirtæki m.a. stjórnvaldssektum. Aðgerðirnar eru framkvæmdar í samvinnu við Samkeppniseftirlitið.

Ríkislögreglustjórinn / Samkeppniseftirlitið, 14. mars 2011