15.10.2014

Vegna rannsóknar á skipafélögum

Vegna umfjöllunar í Kastljósi í gærkvöldi og í tilefni af fyrirspurnum fjölmiðla í dag um rannsókn á hugsanlegum brotum Eimskipafélags Íslands hf. og Samskipa hf. og tengdum félögum vill Samkeppniseftirlitið taka fram eftirfarandi:

Eins og Samkeppniseftirlitið hefur áður staðfest opinberlega rannsakar það nú hvort vísbendingar um ólögmætt samráð fyrirtækjanna og hugsanlega misnotkun á markaðsráðandi stöðu eigi við rök að styðjast. Hófst rannsóknin með húsleit hjá félögunum í september á síðasta ári og var frekari gagna aflað í júní síðastliðnum.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins lýtur að þeim fyrirtækjum sem í hlut eiga. Stendur hún enn yfir. Hins vegar er það lögbundið hlutverk embættis sérstaks saksóknara að rannsaka hugsanleg brot stjórnenda eða starfsmanna fyrirtækja á samkeppnislögum, að undangenginni kæru frá Samkeppniseftirlitinu. Hefur slíkri kæru verið beint til embættis sérstaks saksóknara.

Samkeppniseftirlitið mun ekki verða við beiðnum fjölmiðla um aðgang að gögnum málsins. Jafnframt er eftirlitið ekki reiðubúið að staðfesta þá umfjöllun sem fram kom í Kastljósi í gærkvöldi. Þá skal sérstaklega tekið fram að rannsókn málsins er ekki komin á það stig að unnt sé að slá neinu föstu um niðurstöður hennar. Rannsókninni miðar vel en mikil vinna er óunnin við greiningu gagna og vísbendinga.