31.7.2008

Samkeppniseftirlitið leggur dagsektir á Miðbæjarhótel ehf.

Þann 2. mars 2007 gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Samtökum ferðaþjónustunnar vegna meintra brota samtakanna á 10., sbr. 12. gr. samkeppnislaga á ýmsum undirmörkuðum ferðaþjónustumarkaðar. Í framhaldi af vinnslu þeirra upplýsinga sem aflað var í húsleitinni aflaði Samkepppniseftirlitið frekari gagna frá fjölmörgum aðilum á ferðaþjónustumarkaði, þ.á m. vegna meints samráðs á hótelmarkaði í andstöðu við 10. gr. samkeppnislaga. Miðbæjarhótel ehf. var einn þeirra aðila er Samkeppniseftirlitið óskaði eftir gagna frá. Þrátt fyrir að Samkeppniseftirlitið hafi ítrekað óskað eftir tilteknum gögnum frá hótelinu hefur eftirlitinu enn ekki borist svar við gagnabeiðninni. Með því hefur Miðbæjarhótel ehf. vanrækt ótvíræða lagaskyldu um afhendingu gagna og upplýsinga á grundvelli 19. gr. samkeppnislaga. Af þessum sökum og með heimild í 38. gr. samkeppnislaga hefur Samkeppniseftirlitið ákveðið að leggja dagsektir á Miðbæjarhótel ehf. Er fyrirtækinu gert að greiða 150.000 kr. á dag þar til gagna- og upplýsingabeiðni Samkeppniseftirlitsins hefur verið svarað með fullnægjandi hætti. 

Ákvörðun nr. 44/2008.