8.5.2017

Kynning fyrir borgarráð um samkeppni og meðhöndlun úrgangs

Þann 27. apríl 2017 var Samkeppniseftirlitinu boðið á fund borgarráðs Reykjavíkur til að kynna sameiginlega skýrslu samkeppniseftirlitanna á Norðurlöndunum um samkeppni við meðhöndlun úrgangs. Samkvæmt samkeppnislögum fer Samkeppniseftirlitið með svokallað málsvarahlutverk sem felst í því að kynna kosti samkeppni fyrir stjórnvöldum, fyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum. Í skýrslunni eru lagðar til leiðir fyrir sveitarfélög til að nýta sér kosti samkeppninnar sem tæki til að lækka kostnað íbúa af meðhöndlun úrgangs, styðja við nýsköpun og til að ná markmiðum um umhverfisvernd.

Samkeppniseftirlitið hefur jafnframt kynnt skýrsluna, m.a. fyrir Sambandi íslenskra sveitarfélaga og á haustráðstefnu Fagráðs um endurnýtingu og úrgang.

Glærukynningu Samkeppniseftirlitsins af fundinum má nálgast hér . Skýrsla norrænu samkeppniseftirlitanna var kynnt á síðasta ári. Nálgast má skýrsluna, samantekt hennar á íslensku og frétt um málið hér .