27.4.2010

Kæra Símans vegna húsleitar Samkeppniseftirlitsins á ekki við rök að styðjast

Siminn_logoÍ fjölmiðlum í dag er greint frá því að Síminn hafi stefnt Samkeppniseftirlitinu fyrir héraðsdóm og krefjist þess að öllum gögnum sem aflað var í húsleit hjá Símanum verði eytt, þar sem starfsmenn keppinautar Símans hafi annast afritatöku.  Af þessu tilefni vill Samkeppniseftirlitið taka fram eftirfarandi:

Eins og fram er komið opinberlega framkvæmdi Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Símanum og öðrum fyrirtækjum í sömu samstæðu, þann 21. apríl sl.  Húsleitin var viðamikil enda þurfti eftirlitið að afrita og leita gagna á nokkrum stöðum í húsnæði fyrirtækjanna. Samkeppniseftirlitið þurfti því að fá til liðs við sig nokkra einstaklinga með upplýsingatækniþekkingu til að aðstoða við aðgerðina og leitaði til Þekkingar í því skyni. Umræddir einstaklingar voru starfsmenn Samkeppniseftirlitsins á vettvangi og störfuðu samkvæmt fyrirmælum og á ábyrgð þess.

Öll aðgerðin fór fram undir stjórn Samkeppniseftirlitsins og þau gögn sem haldlögð voru og afrituð eru vistuð með öruggum hætti hjá Samkeppniseftirlitinu.  Umræddir einstaklingar komu hvergi nærri haldlagningu gagna eða efnislegri skoðun tölvugagna heldur fólst hlutverk þeirra einvörðungu í tæknilegri aðstoð við afritun gagna. Málatilbúnaður Símans á því ekki við rök að styðjast.

Með hliðsjón af framangreindu kemur kæra Símans og krafa um eyðingu húsleitargagna á óvart, ekki síst í ljósi þess að Síminn lýsti því opinberlega yfir að fyrirtækið myndi vinna með Samkeppniseftirlitinu við öflun gagna og rannsókn á þeim.