17.4.2019

Samkeppniseftirlitið heimilar samstarf Eimskips og Royal Arctic Line með skilyrðum sem efla eiga samkeppni í flutningum

Samkeppnislög leggja bann við samstarfi keppinauta sem raskað getur samkeppni. Lögin veita hins vegar heimild til þess að veita undanþágu frá samráðsbanninu ef tryggt er að samstarf sé til hagsbóta neytendum og samkeppni ekki ógnað. Unnt er að setja skilyrði til að tryggja þetta.

Samkeppniseftirlitið hefur í dag veitt grænlenska skipafélaginu Royal Arctic Line A/S og Eimskip heimild til samstarfs sem felur í sér samnýtingu á plássi í áætlunarskipum félaganna. Hefur Samkeppniseftirlitið sett samstarfinu skilyrði sem ætlað er að tryggja samkeppni á markaðnum.

Með framangreindu fyrirkomulagi verður grænlenska félaginu kleift að bjóða upp á vikulegar áætlunarsiglingar til og frá Íslandi og þjónusta íslenska viðskiptavini. Er þetta til hagsbóta fyrir íslenska neytendur.

Skilyrði sem sett eru fyrir samstarfinu tryggja m.a. aðgang grænlenska félagsins að hafnaraðstöðu á Íslandi, auk þess sem að stuðlað er að því að laust flutningspláss geti nýst almennum viðskiptavinum, umboðsmönnum og flutningamiðlunum.