31.5.2011

Samkeppniseftirlitið birtir í dag bráðabirgðaákvörðun um að IGS ehf. skuli semja um fraktafgreiðslu við Cargo Express ehf.

Samkeppniseftirlitð hefur í dag tekið ákvörðun til bráðabirgða vegna synjunar IGS ehf. á Keflavíkurflugvelli á fraktafgreiðslu fyrir fyrirtækið Cargo Express ehf. sem býður upp á fraktflutninga með flugvélum Iceland Express. Er talið sennilegt að með synjuninni hafi IGS misnotað markaðsráðandi stöðu sína á markaði sölu á fraktafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli. IGS er dótturfélag Icelandair Group og þar með systurfélag Icelandair Cargo sem er með yfirburðarstöðu í fraktflutningum til og frá Íslandi. Í ákvörðuninni er þeim fyrirmælum beint til IGS að ganga þegar til samninga við Cargo Express um fraktafgreiðslu.

Sjá nánar ákvörðun til bráðabirgða nr. 1/2011.