12.1.2009

Erindi Auðkennis hf. um framlengingu á undanþágu á grundvelli ákvæðis 15. gr. samkeppnislaga vegna samstarfs banka og sparisjóða um öryggisbúnað í bankaþjónustu

logo_audkenniSamkeppniseftirlitinu barst erindi frá Auðkenni hf. þar sem óskað var eftir því að undanþága, sem Samkeppniseftirlitið veitti á grundvelli ákvæðis 15. gr. samkeppnislaga með ákvörðun nr. 50/2006 vegna samstarfs banka og sparisjóða vegna kaupa, uppsetningar og reksturs á svokölluðum Todos-öryggisbúnaði í netbankaþjónustu, yrði framlengd til 31. desember 2011. Samkeppniseftirlitið taldi í ljósi aðstæðna unnt að fallast á þá beiðni.

Ákvörðun nr. 1/2009.