Fréttayfirlit: 2021 (Síða 3)

Fyrirsagnalisti

27.4.2021 : Kaup Samkaupa á verslunum Festi í Nóatúni og á Hellu

Samkeppniseftirlitinu hefur borist samrunatilkynning vegna kaupa Samkaupa annars vegar á verslun Festi í Nóatúni, Reykjavík, og hins vegar verslun Festi á Hellu. 

23.4.2021 : Framkvæmdastjórn ESB samþykkir beiðni Samkeppniseftirlitsins að alþjóðlegur samruni fyrirtækja á sviði krabbameinsskimana verði rannsakaður

Í gær samþykkti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins beiðni Samkeppniseftirlitsins, og sambærilegar beiðnir samkeppnisyfirvalda í Belgíu, Frakklandi, Grikklandi, Hollandi og Noregi, um að taka samruna Illumina og Grail til meðferðar. Um er að ræða líftæknifélög sem m.a. sérhæfa sig á sviði krabbameinsskimana.

20.4.2021 : Þýðing virkrar samkeppni í íslensku atvinnulífi

Í dag hefur Samkeppniseftirlitið birt rit nr. 1/2020 þar sem teknar hafa verið saman rannsóknir um áhrif samkeppni á ýmsa hagræna þætti sem mörgum er kunnugt um, s.s. á framleiðni, nýsköpun og hagvöxt, en einnig er fjallað um áhrif samkeppni á aðra þætti sem alla jafna er ekki rætt jafn mikið um, s.s. fæðuöryggi, ójöfnuð og atvinnustig.

 

15.4.2021 : Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum vegna fyrirhugaðra kaupa Skeljungs hf. á Port I ehf.,eignarhaldsfélagi Dælunnar ehf. og Löðurs ehf.

Samkeppniseftirlitinu barst tilkynning um samruna vegna kaupa Skeljungs hf. á öllum hlutum í félaginu Port I ehf. Með kaupunum eignast Skeljungur rekstur Löðurs bílaþvottastöðva og eldsneytisstöðva Dælunnar. Hér má finna samrunaskrá fyrirtækjanna þar sem trúnaðarupplýsingar hafa verið fjarlægðar.

 

13.4.2021 : Samkeppniseftirlitið heimilar samruna Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH afurða með skilyrðum

Samkeppniseftirlitið hefur í dag heimilað samruna kjötafurðastöðvanna Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH afurða með skilyrðum. Samrunaaðilar brugðust við mati eftirlitsins á skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni með því að setja fram tillögur að skilyrðum sem væru til þess fallnar að mæta áhyggjum Samkeppniseftirlitsins af skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni, en gerðu um leið samrunaaðilum kleift að framkvæma samrunann og ná markmiðum hans. 

30.3.2021 : Vegna umfjöllunar um málefni Festi á forsíðu Fréttablaðsins

Í viðtali Fréttablaðsins við framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins á forsíðu Fréttablaðsins í dag kallar hann eftir „stjórnsýsluúttekt á framferði Samkeppniseftirlitsins“, sem m.a. þurfi „að svara áleitnum spurningum um ákvarðanir tengdar verslun Festar hf. á Hellu og óhóflegan kostnað af kunnáttumanni“. Kemur fram að „Festi hafi ítrekað gert efnislegar og rökstuddar athugasemdir við störf óháða kunnáttumannsins og gagnrýnt óhóflega þóknun sem hann hefur krafið félagið um.“

26.3.2021 : Í tilefni af tilkynningu Byggðaráðs Rangárþings ytra um mögulega lokun Festi á verslun sinni á Hellu

Byggðaráð Rangárþings ytra hefur birt yfirlýsingu varðandi rekstur dagvöruverslunar á Hellu. Er hún sett fram í tilefni af umfjöllun um mögulega lokun á verslun Festi á Hellu og framkvæmd Festi á sátt sem félagið gerði við Samkeppniseftirlitið.

26.3.2021 : Vegna umfjöllunar forstjóra Brims um athuganir Samkeppniseftirlitsins vegna samruna og yfirráða

Í fjölmiðum hefur verið greint frá gagnrýni forstjóra Brims í garð Samkeppniseftirlitsins sem fram kom í ávarpi hans sem birt er í ársskýrslu félagsins. Þar er gagnrýnt að Samkeppniseftirlitið hafi haft afskipti af sameiningum fyrirtækja í sjávarútvegi síðastliðin 15 ár þrátt fyrir að lög um stjórn fiskveiða, sem takmarka hámarkseign hvers fyrirtækis á aflaheimildum, gangi mun lengra en samkeppnislög varðandi sameiningu eða samruna fyrirtækja í sjávarútvegi.

24.3.2021 : Í tilefni af opinberri umfjöllun um sölu Festi á verslun á Hellu og störf kunnáttumanns

Í framhaldi af aðalfundi Festi hafa fjölmiðlar fjallað um sátt sem N1 og Festi (nú Festi) gerðu við Samkeppniseftirlitið vegna samruna fyrirtækjanna. Í því sambandi hefur sérstaklega verið fjallað um sölu Festi á verslun á Hellu og störf óháðs kunnáttumanns sem skipaður var á grundvelli sáttarinnar.

19.3.2021 : Vegna umfjöllunar um innviðasamstarf í fjarskiptum

Í sérriti Morgunblaðsins, í tilefni Iðnþings, þann 18. mars síðastliðinn, er viðtal við Orra Hauksson, forstjóra Símans, þar sem hann fjallar um afstöðu Samkeppniseftirlitsins til samstarfs fjarskiptafyrirtækja við uppbyggingu innviða. Í leiðara Morgunblaðsins í dag, 19. mars, er lagt út af viðtalinu, undir fyrirsögninni „flækjur og flöskuhálsar“.

17.3.2021 : Samruni Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH afurða

Samkeppniseftirlitið hefur nú til skoðunar hvort og þá hvaða skilyrði þurfi að setja fyrir samruna Norðlenska matborðsins ehf., Kjarnafæðis hf. og SAH afurða ehf., en samruni þessara félaga er nú til rannsóknar. Miða möguleg skilyrði að því að tryggja samkeppni á markaðnum neytendum og bændum til hagsbóta. Viðræður við samrunaaðila um þetta standa nú yfir.

16.3.2021 : Sala verslunar Festi á Suðurlandi

Þann 11. mars sl. synjaði Samkeppniseftirlitið Festi um sölu verslunar Kjarvals á Hellu til óstofnaðs einkahlutafélags Sigurðar Elíasar Guðmundssonar. 

11.3.2021 : Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfestir ákvörðun um ógildingu samruna á markaði fyrir myndgreiningarþjónustu

Með úrskurði sínum í dag hefur áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, nr. 35/2020, þar sem ógiltur var samruni Íslenskrar myndgreiningar ehf. og Læknisfræðilegrar myndgreiningar ehf.

11.3.2021 : Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum vegna sameiginlegra yfirráða Alfa hf., SF VII ehf., Eldeyjar Holdco ehf. yfir Kynnisferðum ehf., Eldey THL hf., og dótturfélögum þeirra

Samkeppniseftirlitinu var þann 16. febrúar tilkynnt um fyrirhuguð kaup BBL 144 ehf. (hér eftir „BBL“) og Eldeyjar Holding ehf. (hér eftir „Eldey HoldCo“) og fl. á hlutafé í Eldey TLH hf. Arcanum Fjallaleiðsögumönnum ehf. og Logakór ehf., sbr. meðfylgjandi samrunaskrá. 

4.3.2021 : Hæstiréttur Íslands staðfestir 480 milljón króna sekt á Mjólkursamsöluna vegna alvarlegra brota á samkeppnislögum

Með dómi Hæstaréttar Íslands, sem kveðinn var upp í dag, er staðfestur dómur Landsréttar um alvarleg brot Mjólkursamsölunnar (MS) á samkeppnislögum. Standa óhaggaðar 480 m.kr. sektir sem Samkeppniseftirlitið lagði á MS vegna alvarlegrar misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og brota á upplýsingaskyldu félagsins.

25.2.2021 : Samkeppniseftirlitið heimilar samruna dótturfélags Síldarvinnslunnar hf. og Bergs ehf

Með ákvörðun nr. 2/2021 hefur Samkeppniseftirlitið tekið afstöðu til samruna Bergs-Hugins ehf., dótturfélags Síldarvinnslunnar hf., og Bergs ehf. Um er að ræða sjávarútvegsfyrirtæki sem bæði starfa við botnfiskveiðar og hafa gert út frá Vestmannaeyjum með samanlagt þremur togurum.  

3.2.2021 : Forgangsröðun mála hjá Samkeppniseftirlitinu

Vegna mikilla anna við rannsókn samrunamála, mála vegna yfirstandandi heilsuvár af völdum COVID-19, og annarra brýnna umfangsmikilla rannsókna, er fyrirsjáanlegt að tafir verði á næstunni við meðferð annarra mála hjá Samkeppniseftirlitinu.

Samkeppniseftirlitið hefur á undanförnum misserum kappkostað að flýta meðferð mála eftir því sem kostur er, og hefur í því sambandi beitt ákvæði 3. mgr. 8. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 sem veitir eftirlitinu heimild til að leggja mat á tilefni rannsókna og forgangsröðun mála.

13.1.2021 : Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfestir að Síminn hafi með markaðssetningu og sölu á Enska boltanum brotið gegn sátt sem fyrirtækið gerði við Samkeppniseftirlitið

Áfrýjunarnefndar samkeppnismála kvað í dag upp úrskurð í tilefni af kæru Símans hf. á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þar sem fyrirtækinu hafði verið gert að greiða stjórnvaldssekt vegna brota á skilyrðum tveggja sátta sem það hafði gert við eftirlitið 23. janúar og 15. apríl 2015.

7.1.2021 : Gróf brot Byko á samkeppnislögum og EES-samningnum staðfest og sekt hækkuð

Hæstiréttur Íslands hefur í dag staðfest að Byko hafi framið alvarleg brot á samkeppnislögum og hækkað álagða sekt í 400 mkr.

6.1.2021 : Nýjar reglur um meðferð samrunamála tóku gildi um áramótin

Tekið hafa gildi nýjar reglur um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum, nr. 1390/2020. Hinar nýju reglur byggja að verulegu leyti á áður gildandi reglum frá árinu 2008, með síðari breytingum. 

Síða 3 af 3